Morgunn - 01.06.1944, Qupperneq 59
M O R G U N N
55
Hvað sjálfri mér viðkemur hefi ég að eins Fedu sem
fastan stjórnanda og köllunarverk hennar er vafalaust að
koma með sannanir fyrir návist framliðinna manna. En
hún getur einnig komið með orðsendingar, sem hún hefur
orðréttar eftir gáfuðum, látnum mönnum, og jafnvel um
erfið andleg og vísindaleg viðfangsefni. Hún er svo fljót
að þessu, að fundarmenn verða þess naumast varir, að
hún er ekki annað en milliliður, sem endurtekur það, sem
aðrir segja við hana.
Stundum hafa aðrir framliðnir menn tekið stjórn á mér
og þeim hefur tekizt að koma sjálfir fram því, sem þeir
vilja segja, en oftast nota þeir Fedu sem millilið.
Ef stjórnandi þinn hefur sagt þér, að þú getir orðið
transmiðill, skaltu spyrja hann, hverja af hinum þrem
tegundum transins þú eigir að leggja áherzlu á. Senni-
lega svarar hann þér, að hann geti ekkert fullyrt um það
fyrr en eftir hæfilega margar tilraunir. Þú skalt ekkert
gera upp á eigin spýtur. Það kann jafnvel að verða hættu-
legt.
Þá skaltu ganga í hæfilega stóran þjálfunarhring, sem
stjórnað er af æfðum miðli og kennara.
Ég veit að sumar sálrænar gáfur, svo sem skyggni og
ósjálfráða skrift, geturðu þjálfað þótt þú hafir um þig
hring af fólki, sem litla eða enga reynslu hefir; þjálfun
mína fékk ég með Florence, Nelly og Agnesi, sem engu
meiri reyslu höfðu en ég sjálf, en það kann að reynast.
örðugt að finna aðra eins hjálpendur og þær reyndust mér
á byrjunarárum mínum. . . .
Þær lásu og þær hugsuðu og þær voru lausar við hvers-
konar hleypidóma og rangar hugmyndir um hlutina. Þú
munt sennilega spara þér mikla óþarfa tímaeyðslu með því
að ganga inn í þjálfunar-hring, sem eitthvert viðurkennt
spiritistafélag rekur og stjórnað er af æfðum miðli, sem
sérstaka þjálfun hefur fengið í að æfa miðla. Vera má að
þú óskir eftir mjög fámennum hring, en þó mun fjölmenn-