Morgunn - 01.06.1944, Page 60
56
M O R G U N N
ari hringur hjálpa þér betur í byrjuninni, því að frá honum
er líklegra að þú fáir meiri krapt hugrænan, sálrænan og
„magnetískan“.
Ef þú ert að þjálfa þig fyrir algerðan trans, er líklegt
að þú verðir var við eins og prjóna- eða nálastungur í hend-
ur þínar og fætur, og stundum eins og bandi sé vafið um
höfuð þitt. Þér kann líka að finnast eins og líkami þinn sé
að þrútna og vaxa óskaplega mikið. Ég hefi sjálf oft orðið
altekin þeirri tilfinning. Þessar undarlegu tilfinningar eiga
þó aldrei að verða svo ákafar, að þær valdi þér þjáningum.
Þegar fólk segir við mig: ,,Ó, hvað ég varð einkennileg í
hringnum í gærkveldi. Eins og járnböndum væri vafið um
höfuð mitt svo að ég ætlaði að hljóða af sársauka og
óskaplegar nálastungur voru um mig alla“ — þá grunar
mig jafnan, að þessu fólki sé tamt að gera úlfalda úr mý-
flugunni og ýkja alla hluti, sem við koma sjálfu því; að
þetta fólk vilji vel en hafi þann veikleika, að vilja láta bera
á sinni eigin persónu.
Ef þú ert sérlega næmur og verður fyrir einhverju mjög
óþægilegu, skaltu blátt áfram kasta því af þér með vilja-
ákvörðun þinni eða biðja miðilinn, sem stjórnar hringnum,
að losa þig við ,,áhrifin“, sem hann mun sennilega gera
með strokum. Á öllum þeim mörgu fundum, sem ég sat til
að þjálfa mig, varð ég aldrei fyrir neinum óþægindum,
hvað þá sársaukafullum áhrifum. Vera má að þú verðir
ekki var við nokkur minnstu áhrif mánuðum eða jafnvel
árum saman, og að þegar þú ferð að hugsa að þeim hinu
megin hafi skjátlast, þú hafir enga sálræna hæfileika, fallir
þú skyndilega í algeran trans í fyrsta sinn.
Ef þú ert að þjálfa þig fyrir fyrstu eða aðra tegund-
ina af transi fer þjálfunin fram á allt annan veg, því að þá
byrjar þú ,,starfið“ strax með þvi að reyna að vera í sam-
vinnu við stjórnanda þinn frá byrjun.
Reyndu að finna réttan hóp af fólki til að sitja með og
reyndu að kunna við þig í hópnum, bæði með miðlinum
og fundarfólkinu. Taktu þá ákvörðun strax, að leiða allt
J