Morgunn - 01.06.1944, Side 62
58
M O R G U N N
vera að undirbúa þig og þessvegna ertu þá næmari fyrir
áhrifum en ella. Gerðu þér þetta ljóst og þá muntu einbeita
þér að því, að láta ekkert trufla rósemi þína og jafnvægi.
Jafnvel enn, eftir mitt langa miðilsstarf, kemur það
fyrir, þegar fundur er að byrja, að ég ætla að verða óróleg
og jafnvægi mitt að raskast. Stundum er orsökin sú, að
ég hefi fengið bréf, sem raskaði jafnvægi mínu. Fólk skrif-
ar miðlunum ákaflega oft um erfiðleika sína og alls kon-
ar vandræði i þeirri trú, að með þeim búi einhver öfl.
sem strax fari að starfa fyrir það ef miðillinn verði snort-
inn af hjartnæmum útlistunum í bréfinu. Fólk, sem
ókunnugt er málinu ímyndar sér að miðlarnir búi yfir
ýmiskonar furðulegum öflum. Oft getum við ekkert annað
gert fyrir þetta fólk en að biðja fyrir því, nema alveg sér-
staklega standi á.
Hverjir, sem þessir erfiðleikar hafa verið, sem bréfið
greindi frá, finn ég nú allt í einu skýrt til þeirra, vegna
þess að leiðtogar mínir og stjórnandi eru farnir að undir-
búa mig fyrir fundinn og þessvegna er ég orðin næmari
fyrir en ella. Þá verð ég að beina allri viljaákvörðun minni
að því, að hrinda frá mér hverskonar hugsun um þessa
erfiðleika bréfritarans en varðveita móttökuhæfileika
minn fyrir áhrifum stjórnanda míns og leiðtoga jafnhliða.
Með þessu móti kemst ég í algerlega athafnalaust og vilja-
laust ástand, sem þó er ákaflega næmt og opið fyrir
áhrifum andaleiðtoganna.
Beztur af öllum líkamlegum undirbúningi fyrir trans-
fundi er að mínum dómi að gera andardráttaræfingar. Ég
geri þær ævinlega.
Ef þú ert inni skaltu standa við opinn glugga. Andaðu
að þér í gegn um nefið, svo djúpt sem þú getur, án þess
að þenja efri hluta brjóstkassans út um of. Haltu loftinu í
lungunum fáeinar sekúndur og andaðu síðan hægt út með
munninum. Gerðu þetta aðeins nokkrum sinnum i einu í
byrjun, en oftar þegar þú ert orðinn vanur þvi. . . .
Sérhver andardráttaræfing, sem ekki er of erfið, er