Morgunn - 01.06.1962, Blaðsíða 37
MORGUNN
33
þekkti í Canada, hefði beðið sig fyrir hlutinn og hefði hann
verið í eigu manns hennar, sem framið hefði sjálfsmorð.
En um nánari atvik eða aðstæður kvaðzt læknirinn ekkert
vita. Var nú ekkjunni skrifað til Canada og hún beðin um
nánari upplýsingar. Svarið kom og allt stóð heima. En
ekkjan kvaðst ekki trúa, læknirinn mundi hafa vitað þetta
allt og miðillinn náð vitneskjunni frá honum með fjar-
hrifum, hugsanaflutningi.
Þá var gerð ný tilraun. Konan sendi innsiglaðan pakka
til læknisins, og þannig frá gengið, að óðara sæist, ef
pakkinn væri opnaður. Kom nú læknirinn með pakkann til
Estelle Roberts og skrifaði upp eftir henni það, sem hún
sagði meðan hún hélt á pakkanum. Síðan var pakkinn
sendur óopnaður aftur til Canada ásamt frásögn miðils-
ins. Hafði í pakkanum verið mynd af látna manninum
og ýmislegt fleira. Allt stóð heima, sem frú Roberts hafði
sagt, meðan hún hélt á lokaða pakkanum í hendi sér.
Ekki eru það allt fagrar eða friðsamlegar sýnir, sem
fyrir augu frú Roberts ber. Alloft hefir hún haft afskipti
af hinum illu öflum dulheima, og kemur þá stjórnandi
hennar, Rauða Skýið, henni til hjálpar. Stundum hefir
hún „hreinsað“ hús, þar sem fólkið var að gefast upp við
að búa. Hefir það þá komið fyrir, að um illar aflstöðvar
virtist að ræða. Er það venjulega í sambandi við eitthvert
illvirki, sem framið hefir verið. Þá safnast á staðinn illar
hugsanir og hin illu öfl dulheima nota þá þetta tækifæri
til þess að gera enn meira illt af sér. Hér er það, að
mennirnir gætu látið mikið gott af sér leiða og gengið
í lið með þjónum ljóssins. Kærleikurinn er það eina vopn,
sem nokkurs megnar gegn myrkraliðinu, sem vissulega
er raunverulegt og er vissulega til.
Oft hefir þess verið farið á leit við frú Roberts, að
með skyggnigáfu sinni aðstoðaði hún lögreglumenn við
3