Morgunn - 01.06.1962, Blaðsíða 10
Úr ýmsum áttum
eftir ritstj.
★
1 riti, sem aðeins kemur út tvisvar á ári, eins og Morg-
unn, verður oft óhægt um vik, að minnast atburða sem
gerast. Þegar ritið kemur út, er oft svo langt liðið frá at-
burðum, að þeir vekja naumast lengur athygli og þá ekki
lengur tímabært að skrifa um þá.
Bækur ^íkt er að segja um ritdóma. Flestar bækur
koma út í desember mánuði, eru ekki komnar á
markað, þegar Morgunn er settur í nóvember, en búið að
margskrifa um þær og lesa þær, þegar Morgunn fer til
prentunar í maímánuði. Að sjálfsögðu er ekki viðfangs-
efni þessa rits að minnast annarra bóka en þeirra, sem
um þau mál fjalla, sem Morgni er ætlað að kynna les-
endum.
Fyrir síðustu jól kom á markaðinn mikiil fjöldi bóka
og óvenju margar bækur beint eða óbeint um sálræn mál.
Langmest mun þeirra hafa selzt bók Ólafs Tryggvasonar
á Akureyri, um andlega og sálræna reynslu hans og lækn-
ingar. Þá kom út árbók S.R.F.Í., sem er sjálfsævisaga
ameríska miðilsins Fords, merk bók, sem frá mörgu segir
í marglitum æviferli hins víðkunna miðils. Ennfremur
fyrri hluti ævisögu. frú Kristínar Kristjánsson, skráð af
Guðmundi G. Hagalín. Fyrir skömmu andaðist frú Krist-
jánsson, nýkomin til Vesturheims, en þar hefir hún dval-
izt mikinn hluta ævi sinnar. Þessar tvær síðastnefndu
bækur segja frá ýmsu öðru en sálrænni reynslu og gefur
það þeim enn meira gildi mörgum lesendum. Þá hefir
útgáfufélag á vegum guðspekinema gefið út að nýju Dul-