Morgunn - 01.06.1962, Side 48
44
MORGUNN
„orðið“, „Log'os", hinn sanni „Bodhisattva", holdguð
opinberun Guðs. Ljós himnanna vitraði honum náttúr-
una, orsök og lækningu þjáningarinnar.
Helgisagnir segja frá fæðingu hans, nærfellt 600 árum
fyrr en Kristur kom. Þær segja frá því, að meðan móðir
hans var þunguð að honum, hafi hún teygt sig upp til
að ná í trjágrein, en þá hafi tréð beygt sig niður að
henni í tilbeiðslu. Þær segja frá freistingum Búddha í
óbyggðunum. Þær segja frá kraftaverkum hans og kenn-
ingu hans, þegar hann gekk um, gerði gott og prédikaði
vizku og samúð. Þær segja frá síðustu máltíð hans og
að þá hafi hann boðið lærisveinum sínum að bera boð-
skap sinn öllum heimi.
Þegar fyrstu rómversk-kaþólsku kristniboðarnir mættu
munkum Búddha mörgum öldum síðar austur í Asíu, féllu
þeir í stafi, er þeir sáu, að Búddhamunkarnir voru eins
klæddir og sjálfir þeir, voru krúnurakaðir eins og sjálfir
þeir, notuðu bænafesti, líka talnabandi sjálfra þeirra,
krupu fyrir helgimyndum eins og sjálfir þeir, brenndu
reykelsi, sungu bænir við logandi kertaljós og sögðu frá
páfa sínum, Dalai Lama, sem kjörinn væri af Guði. Og
þó undraði kristniboðana allra mest það, að Búddha-
munkarnir trúðu á persónulega sáluhjálp og lögðu stund
á andlega þjálfun í þeim tilgangi, að geta orðið eitt með
föður-móðursál alheimsins.
Nútíma Búddhatrúarmaður segir: „Guð er ekki til. En
þetta er aðeins nafn. Andlegt lögmál, leyndardómsfullt
og háleitt, ber oss mennina, að brjósti kærleika síns“.
Búddhatrúarmenn eru nú um 400 milljónir, og flestir
þeirra virðast sammála manninum, sem ég vitnaði til.
Hvar, í allri þessari eldgömlu arfleifð mannkyns, finn-
um vér stórkostlegri sönnun guðlegrar opinberunar en
í trúarbrögðum Gyðinga? Heiðnir menn, engu síður en
Gyðingar, hafa laðast að furðuheimi hinnar hebresku
Biblíu. Og það, sem meira er, kristnir menn hljóta að
trúa á hennar heim, allt frá því er englar birtust Abraham