Morgunn - 01.06.1962, Blaðsíða 14
10
MORGUNN
sem mjög fást við svipuð verkefni og sálarrannsókna-
menn gerðu og gjöra enn. 1 mörgum löndum eru þessar
rannsóknir nú reknar af miklum áhuga ágætra manna. í
þrem löndum starfa háskóladeildir að þessum viðfangs-
efnum, ein í Utreeht í Hollandi undir leiðsögn próf. Taen-
hoffs, önnur í Bandaríkjunum, við Dukeháskólann, undir
forystu dr. Rhines, og nú hefir hin þriðja bætzt við í
Rússlandi, við háskólann í Leningrad. Auk þess reka slík-
ar rannsóknir og tilraunir háskólamenn víða um lönd,
þótt ekki séu háskóladeildir stofnaðar til rannsóknanna.
„ . Innan vébanda mótmælendakirknanna á
^hák^k Norðurlöndum hefir á síðari árum borið
og a ir ja. ^ svonefndri hákirkjustefnu. Legg-
ur hún mikla áherzlu á strangleika í kirkjulegum siðum
og kenningu, sakramentin og búnað presta, sem leitast er
við að færa í gömul, rómv.-kaþólsk form. Einnig hér á
landi gætir þessarar stefnu nokkuð á síðustu árum, en
miklu fremur í Svíþjóð en öðrum kirkjum Norðurlanda.
Leggjast menn þessarar hákirkjustefnu yfirleitt fastlega
gegn kvenprestum og bera þar fyrst og fremst fyrir sig
orð Páls postula um, að „konur skuli þegja á safnaðar-
samkomum". 1 Svíþjóð blandast þetta barnalega deilu-
mál um kvenprestana mjög inn í kjör nýrra biskupa á
síðustu árum. Ríkisstjórnin sænska er harðlega andvíg
mótstöðumönnum kvenprestanna og vegna þess, að há-
kirkjumennirnir sænsku hafa fengið sína menn kjörna í
biskupsembætti þar í landi á síðustu árum, en langsam-
lega mikill meiri hluti almennings er á öðru máli, hefir
jafnvel komið til orða, að breyta sænskum lögum um bisk-
upskjör. — I tveim biskupsdæmum sænskum fer nú fram
í Svíb'óð biskupskjör. En þar í landi tilnefna prestar
hvers biskupsdæmis þrjá klerka, og er ríkis-
stjórnin bundin við að veita einhverjum þessara þriggja
embættið. Blöðin þar í landi ræddu ákaft þessi biskups-
kjör, og segir málgagn ensku biskupakirkjunnar, Church
Times, sem sterklega er á máli sænsku hákirkjumann-