Morgunn - 01.06.1962, Blaðsíða 21
MORGUNN
17
laust fyrir hina, sem þekkja af eigin raun. Notagildið er
óháð skýringunni.
6.
Af því, sem hér að framan er sagt, má ljóst vera, að
innsæi og greind ásamt sterkum hjálparvilja eru þeir
eiginleikar, sem farsælastir reynast, þegar greiða þarf úr
sálarvanda. Sem betur fer geta góðviljaðir menn og vitrir
oft komizt langt, þegar slíkrar hjálpar er þörf, án fræði-
legrar þekkingar. Fræðileg þekking, ekki sízt á þeim
hættum, sem yfir vofa, er samt verðmæt viðbót, og
reynsla þeirra, sem áður fetuðu, svipaðar slóðir, er gott
og nauðsynlegt veganesti.
Með djúptækri sálgreiningu er ráðizt í svo vandasam-
an holskurð á mannlegri sál, að til þess verður að ætlast,
að sá, sem á hnífnum heldur, skeri ekki í blindni, heldur
viti vel, hvað hann er að gera.
Sálgreining í orðsins fyllstu merkingu er mjög tíma-
frek og kostnaðarsöm læknisaðgerð — fjöldamörg viðtöl
oft árum saman. Liggur í augum uppi, að efnahagur
flestra stæði ekki undir slíku.
Helzti vinningurinn, sem sálgreiningin hefur haft í för
með sér fyrir heiminn, mun eflaust reynast sú raunvís-
indalega þekking á manneðlinu, sem áunnizt hefur. Sú
þekking virðist staðfesta gömul sannindi og lyfta þeim
til vegs að nýju.
II
1.
Það er óvinnandi verk að gera í stuttu máli grein fyrir
hugmyndum Dr. Jung’s um gerð sálarinnar, svo að veru-
leg mynd geti orðið. Þó skal þess freistað lítillega. En
lesandinn aðgæti það, að hér eru á ferðinni hugmyndir
greinarhöfundar um hugmyndir Jungs. En segjum nú svo,
að tveir menn standi saman og virði fyrir sér sama f jallið.
Eru þá ekki bærilegar líkur á því, að annar geti gert sér
2