Morgunn - 01.06.1962, Blaðsíða 45
Höf. greinar þeirrar, sem hér fer á efiir,
er Marcus Bach, prófessor í samanburSi trú-
arbragða viö háskólann í Iowa, U.S.A. Próf.
Bach hefir ferSast um allar álfur heims, til
a8 kynna sér af eigin reynd menningu og
trúarlíf og ritaö mikiö um þau efni.
Hinn sálræni grundvöllur
trúarbragðanna
★
öll meiri háttar trúarbrögð mannkyns eru eins og.
eylönd á stórfljóti sálrænnar reynslu kynslóðanna. Sömu
bylgjur leika um strendur þeirra allra, sömu straumar
hafa sorfið þær, sömu fyrirbrigðin liggja til grundvallar
þeim. En grundvöllur ailra höfuðtrúarbragðanna er:
Samfélag við alheimsandann.
Hin sálræna reynsla, sem skóp trúarbrögðin á löngu
Hðnum öldum, ætti að geta sameinað þau á vorum dög-
um, því að öll byggja þau á sama grunni: Að guðleg
opinberun hafi veitzt mönnum, sem voru í sambandi við
hið eilífa, ótakmarkaða.
I víðari merkingu er spíritisminn rannsókn á hverjum
þeim fyrirbærum, sem snerta framhaldslíf mannssálar-
innar. I þrengri merkingu táknar hann samband við
lifandi framliðna menn. Sem slíkur hefir hann verið for-
dæmdur af flestum nútímaguðfræðingum og öðrum þeim,
sem við trúmál fást. Allt frá hinum frumstæðustu anda-
prestum aftur í forneskju og til nútímamiðlanna hefir
bin djarfa sókn inn á svið hins sálræna verið freist-
andi fyrir mennina. Nútímamaðurinn hefir þor og vilja
til þess að rannsaka með öllum þeim tækjum, sem hann
á yfir að ráða.