Morgunn - 01.06.1962, Síða 50
46
MORGUNN
hafði fyrir stórfelldri sálrænni reynslu fyrir hliðum
Damaskusborgar. Einn af máttugustu hornsteinum krist-
innar kirkju var sá atburður, að sálræn fyrirbrigði gerð-
ust í loftsalnum, þar sem andinn birtist í aðdynjanda
sterkviðris og tungur, eins og af eldi væru, sáust yfir
höfðum postulanna.
Meginvon kristins manns er sú, að látinn lifi. Á ekkert
vald trúir hann fremur en á bænasamfélagið. Kirkjan
kennir æskulýðnum að Jesús sé getinn á yfirvenjulegan
hátt. Trúin á himneska boðun Maríu vottar tilhneiging-
una til að gjöra konuna vegsamlega. Kristindómurinn
kennir, að englar hafi boðað fæðingu frelsarans, að vitr-
un Jósefs um að flýja, hafi bjargað barninu nýfædda frá
bráðum bana, að himnesk rödd hafi heyrzt, þegar Jesús
var skírður, og að hvarvetna hafi kraftaverkin gerzt á
leið hans frá Nazaret og til Golgata. Kirkjan heldur á
lofti því fyrirheiti Krists, að þessi dásemdarverk eigi
að vera förunautar trúaðra lærisveina hans um allan
aldur, og hún vottar sýnir og vitranir helgra kvenna og
karla.
Vísindamaðurinn Louis Anspaeher spurði einhverju
sinni: „Hvernig getur rétttrúaður kristinn maður neitað
að trúa á telpathíuna (fjarhrifin), þar sem hann iðkar
hana hverju sinni, þegar hann biður? Hvernig getur trú-
aður kristinn maður neitað að trúa á birtingar framlið-
inna, úr því að Jesús birtist lærisveinunum í Emmaus?
Hvernig getur rómv. kaþólskur maður neitað að trúa
á hlutskyggni (psychometrie), þegar hann trúir því, að
í beinum og leifum heilagra manna búi læknandi orka,
eins og í Lourdes og St. Anne de Beaupre?"
Hvar á meðal hinna 850 milljóna kristinna manna
finnst sá maður, að hann trúi ekki því, að a. m. k. ein-
hver hluti hinna helgu ritninga sé innblásinn af Guði?
Meira að segja Múhameðstrúarmenn trúa því.
Múhameðstrúarmenn trúa því einfaldlega vegna þess,
að þeir eru sannfærðir um að hin heilaga bók þeirra,