Morgunn


Morgunn - 01.06.1962, Side 50

Morgunn - 01.06.1962, Side 50
46 MORGUNN hafði fyrir stórfelldri sálrænni reynslu fyrir hliðum Damaskusborgar. Einn af máttugustu hornsteinum krist- innar kirkju var sá atburður, að sálræn fyrirbrigði gerð- ust í loftsalnum, þar sem andinn birtist í aðdynjanda sterkviðris og tungur, eins og af eldi væru, sáust yfir höfðum postulanna. Meginvon kristins manns er sú, að látinn lifi. Á ekkert vald trúir hann fremur en á bænasamfélagið. Kirkjan kennir æskulýðnum að Jesús sé getinn á yfirvenjulegan hátt. Trúin á himneska boðun Maríu vottar tilhneiging- una til að gjöra konuna vegsamlega. Kristindómurinn kennir, að englar hafi boðað fæðingu frelsarans, að vitr- un Jósefs um að flýja, hafi bjargað barninu nýfædda frá bráðum bana, að himnesk rödd hafi heyrzt, þegar Jesús var skírður, og að hvarvetna hafi kraftaverkin gerzt á leið hans frá Nazaret og til Golgata. Kirkjan heldur á lofti því fyrirheiti Krists, að þessi dásemdarverk eigi að vera förunautar trúaðra lærisveina hans um allan aldur, og hún vottar sýnir og vitranir helgra kvenna og karla. Vísindamaðurinn Louis Anspaeher spurði einhverju sinni: „Hvernig getur rétttrúaður kristinn maður neitað að trúa á telpathíuna (fjarhrifin), þar sem hann iðkar hana hverju sinni, þegar hann biður? Hvernig getur trú- aður kristinn maður neitað að trúa á birtingar framlið- inna, úr því að Jesús birtist lærisveinunum í Emmaus? Hvernig getur rómv. kaþólskur maður neitað að trúa á hlutskyggni (psychometrie), þegar hann trúir því, að í beinum og leifum heilagra manna búi læknandi orka, eins og í Lourdes og St. Anne de Beaupre?" Hvar á meðal hinna 850 milljóna kristinna manna finnst sá maður, að hann trúi ekki því, að a. m. k. ein- hver hluti hinna helgu ritninga sé innblásinn af Guði? Meira að segja Múhameðstrúarmenn trúa því. Múhameðstrúarmenn trúa því einfaldlega vegna þess, að þeir eru sannfærðir um að hin heilaga bók þeirra,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.