Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 7
Úr ýmsum áttum
Eftir ritstj.
★
Kjarninn
gleymist
Lesendur MORGUNS munu allir hafa fylgzt með þeim
blaðadeilum, sem í dagblöðunum voru háðar á liðnum
vetri um spíritisma. Þegar frá eru skildir þeir sra Sveinn
Víkingur og sra Benjamín Kristjánsson, komu menn furðu-
lega lítið við þann kjarna, sem átt hefði að ræða: Iive
sterk eru þau rök eða hve sterkar eru þær líkur, sem
sálrænu fyrirbærin færa fyrir því að látinn
lifi? Og langmest snerust andmæli manna
gegn málinu um ýmsar skuggahliðar, sem
andstæðingar jafnt og þorri spíritista munu sammála um
að fordæma. Ég býst við að það hafi verið óhjákvæmilegt,
sem orðið hefir, að þegar málefni eins og spíritisminn
berst út til almennings, þá gerist ýmsir til þess að halda
á lofti margskonar hjátrú og ósönnuðum fullyrðingum
um eitt og annað. Sú hefir orðið raunin á. Mönnum nægja
ekki staðreyndirnar. Menn láta ekki þar við sitja, að draga
nf þeim hófsamlegar ályktanir. Menn setja fram sem sjálf-
sagt mál sitt hvað, sem ekki eru fyrir önnur rök en ímynd-
uð rök og óslchyggja. Ritstj. MORGUNS víkur að því á
öðrum stað í þessu riti, að deila þessi ætti að verða lær-
dómsrík spíritistum til viðvörunar. Það var gripið á ýmsu,
sem varað hefir verið við þrásinnis í MORGNI. Hitt nær
ekki nokkurri skynsamlegri átt, sem þrásinnis kom greini-
Á • t • legu í ljós, að afbrýðisemin fyrir
trúarlærdómana hond kirkjukennmganna og hræðsl-
an við að þeim væri hætta búin,
styrði penna flestra þeirra, sem til máls tóku gegn spírit-
1