Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 78
72
MORGUNN
undsson, framkvæmdastjóri, Hilmar Norðfjörð, loft-
skeytamaður og Helgi Vigfússon, verzlunarmaður.
Fulltrúaráðið hefur haldið fund með sér og kosið
þriggja manna framkvæmdastjóm. Hana skipa sr. Jón
Auðuns, sem er formaður, Eggert P. Briem, sem er fé-
hirðir, og Sigurlaugur Þorkelsson, sem er ritari.
Á aðalfundinum voru ennfremur kosnir sem endur-
skoðendur félagsins þeir Ari Thorlacius, lögg. endur-
skoðandi og Ingimar Jóhannesson, fulltrúi.
Eins og lög félagsins, sem prentuð eru hér á eftir,
bera með sér, hefir verið ákveðið að eftirleiðis verði
Morgunn ársrit félagsins, sem öllum félagsmönnum verð-
ur sent gegn 100 kr. ársgjaldi, sem er þá bæði félags-
og áskriftargjald Morguns. Þar sem hjón eru bæði í fé-
laginu verður þeim aðeins sent eitt eintak af ársritinu
og eitt félagsgjald innheimt, nema þau óski annars.
Þeir, sem hafa verið áskrifendur Morguns, en ekki
verið félagsmenn í S.R.F.I. greiða 75 kr. sem áskriftar-
gjald. Nær þetta til allra, sem búsettir eni úti á landi,
utan Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar, en eins
og kunnugt er, hafa þeir ekki greitt félagsgjald undan-
farin ár, þótt þeir hafi verið skráðir félagsmenn, en
fengið útgáfubækur félagsins með sama verði og aðrir
félagsmenn.
Um leið og þessi breyting er gerð, mun Sálarrann-
sóknarfélagið sjálft hafa með höndum afgreiðslu Morg-
uns og innheimtu áskriftar- og félagsgjalda, en Stefán
Stefánsson, bóksali, sem haft hefur á hendi afgreiðslu
Morguns í fjöldamörg ár, lætur af því starfi. Ritstjóri
Morguns og stjórn félagsins vill þakka Stefáni ágæta
samvinnu og þá sérstöku reglusemi í öllum störfum hans
fyrir Morgunn fyrr og síðar, meðan hann hefir haft
þessi störf á hendi.
Verður Morgunn framvegis afgreiddur á skrifstofu
félagsins í Garðastræti 8, sem verður opin a.m.k. einu
sinni í viku, á miðvikudögum frá kl. 514-7 e.h., svo sem