Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 31
MORGUNN
25
nokkur var gestkomandi hjá Mark Twain þessa stundina,
og hann sagði við gestinn: „Nú skal ég vinna kraftaverk.
Án þess að opna þetta bréf skal ég segja þér hvað í því
stendur, einnig dagsetninguna á bréfinu og nafn bréfrit-
arans. Bréfið er frá manni, sem heitir W. H. Wright og á
heima í Virginia City, Nevada, og það er dagsett 2. marz,
fyrir 7 dögum. Wright nefnir við mig í bréfinu þá hug-
mynd sína, að skrifa bók um silfurnámurnar í Nevada,
og hann biður mig sem vin að segja sér álit mitt á þeirri
hugmynd sinni. Hann segist ætla að raða efninu á þennan
og þennan hátt, segir mér niðurröðun efnisins og segist
ætla að ljúka bókinni með sögu „Great Bonanza.“
Því næst opnaði Mark Twain bréfið. Innihald þess
reyndist nákvæmlega hið sama og hann hafði skrifað
Wright 2. marz en ekki sent honum.
Milli þeirra Mark Twains og Wrights var 3 þús. mílna
vegalengd og yfir fjöll og óbyggðir að fara, morguninn
2. marz.
Wright skrifaði síðan bókina og hlaut mikið lof fyrir.
Þá segir Mark Twain athyglisverða skyggnisögu af
sjálfum sér, en hún er þessi:
Með vini sínum, George W. Cable, var hann á fyrirlestra-
ferð um Canada. 1 Windsor-gistihúsinu í Montreal var
haldin móttökuveizla fyrir hina frægu gesti. Þeir stóðu
tveir í öðrum endanum á löngum mótttökusal, aðdáend-
urnir komu inn um hinn endann á salnum og heilsuðu
gestunum, sögðu við þá nokkur viðurkenningar- og aðdá-
unarorð og gengu síðan burt, en aðrir komu. Skyndilega
sá Mark Twain kunnuglegt andlit í mannfjöldanum og
sagði við sjálfan sig: „Nei, þetta er frú R. — ég var búin
að gleyma því að hún á heima í Canada.“ Hann hafði þekkt
frú R. meðan hann var í Carson City suður í Nevada, en
ekkert heyrt frá henni síðan í 20 ár. Ekki hafði hann ver-
að hugsa um hana, og þarna var ekkert, sem gæti minnt
hann á hana. Samt þekkti hann hana þarna óðara og tók
eftir sérkennum á klæðnaði hennar. Fólkið hélt áfram að