Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 54
48
MORGUNN
ur yfirgengur allan annan, og getur ekki byggzt á neinu
öðru en hreinni vanþekkingu.
Hinn sanni kristindómur
Hvemig er þá þessi játningakristindómur, sem S. A. M.
telur eiga að vera hinn eina kristindóm, sem leyfast skuli
í landi voru? Hér verður aðeins drepið á fátt eitt til að
bregða birtu yfir trúarlíf þessa trúvilludómara. Því var
trúað, að Jesús hefði verið einkasonur Guðs í þeim skiln-
ingi, að hann hefði engan jarðneskan föður átt; hann
hafi risið í jarðneskum líkama úr gröf sinni og farið
þannig upp til himna og sitji þar við hægri hönd Guðs
almáttugs og muni þaðan koma að dæma lifendur og
dauða. Yel væri nú hægt að slcilja sumt af þessu á tákn-
legan hátt, en upprunalega var allt þetta skilið bókstaflega
og mundu trúmenn slíkir sem S. A. M. telja það sáluhjálp-
aratriði að trúa þannig. í samræmi við þetta trúðu menn
einnig á upprisu holdsins á efsta degi, þegar rétttrúaðir
menn einir yrðu hólpnir, en heiðingjar og villutrúarmenn,
einkum endurskírendur og iivítvoðungar, sem ekki náðu
skírn, yrðu sendir til helvítis og látnir brenna þar um alla
eilífð á glóandi eldi.
Sá meistari, sem brýndi það fyrir mönnum að elska óvini
sína og biðja fyrir þeim, er í Ágsborgarjátningu gerður
að grimmlyndum heimsdómara, sem stendur fyrir steik-
ingu ungbarna og hræðilegri misþyrming alls þorra mann-
kyns í eilífri útskúfun. Þó að S. A. M. sé þetta vel að
skapi og geti ekki hugsað sér ánægjulegri kristindóm
handa íslendingum, þá segi ég það fyrir mitt leyti, að mér
finnst drottinn kristinna manna lítt vera vegsamaður með
svo ofboðslegum getsökum, enda heyrast þær nú sem bet-
ur fer sjaldan í íslenzkri kirkju. Fyrir mörgum árum
kallaði eitt bezta sálmaskáld og velgerðarmaður íslenzkrar
kirkju þetta: kenninguna ljótu. Hann fékk að vísu biskups-
áminning, en seinna gerði Háskóli íslands þennan prest