Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 52
46
MORGUNN
komnar úr kaþólsku, og játa lútherskir menn með þeim
trú sína á „kaþólska kirkju“! Lúther vildi breyta þessu
í „kristilega kirkju“, en vaninn varð skynseminni yfir-
sterkari. Á sama hátt þykir sumum það nauðsynlegt í dag
að kenna kirkjuna frekar við Lúther en meistarann sjálf-
an, sem er hneyksli út af fyrir sig. En hér er það sljór
hugsunarlaus vaninn en ekkert annað sem ræður. Þetta
gerði þó í rauninni ekki svo mikið til, ef ekki fylgdi sú
fásinna, að fremur bæri að fylgja Lúther en Kristi.
Andinn frá Worms
Lúther var án efa ágætur maður á sinni tíð og mest
fyrir það, að hann hafði andlegan dug til að hugsa fyrir
sjálfan sig. Iíann sagði meðal annars: „Það er bæði erfitt,
skaðsamlegt og háskasamlegt, að breyta gegn samvizk-
unnar röddu.“ Þessi hugsunarháttur er það, sem kallað
hefur verið andinn frá Worms, og við þetta var átt, þeg-
ar íslenzkum prestum var boðið að kenna í „anda vorrar
evangelisku lúthersku kirkju." Merkilegt er það, að menn,
sem þykjast vera lútherskir umfram allt, skuli ekkert
kannast við þennan anda, en telja hann muni gera þjóð-
kirkju vora að undri. S. A. M. þykir það fim mikil, ef
prestar heita því einu að kenna kristindóminn eins og
skilningur þeirra, vit og samvizka býður þeim. En þetta
er einmitt sú hreinlútherska stefna. Án efa hefði Lúther
litið öðru vísi á marga hluti nú en hann gerði á sinni
tíð. En þá fylgdi hann fram því, er hann hélt vera rétt og
gat ekki annað. Enn í dag getur enginn maður gert bet-
ur en fylgja því, er hann veit sannast. Það væri í fyrsta
lagi óheiðarlegt og í öðru lagi gagnslaust að fara öðru vísi
að. Lifandi trú verður aldrei til nema fyrir persónulega
reynslu. Það væri andlegur dauði að vera að þylja fram
kenningar, sem menn hefðu enga sannfæringu fyrir. Þá
fyrst væru prestar orðnir atvinnutrúmenn.
i