Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 65
Hverfur Afríka aftur
til heiðni?
★
I erlendum tímaritum og blöðum er mjög rædd hin erf-
iða aðstaða kristniboðsins og það mikla vandamál, hve
mikið ber á því, að lituðu þjóðirnar hafni kristindóminum
og jafnvel hverfi frá honum í löndum, þar sem hann hafði
fest rætur.
I höfuðmálgagni Brezku Biskupakirkjunnar, Church
Times, 4. jan. í vetur birtist grein um þetta mál eftir rómv.
kaþólskan blaðamann. Þessu hefir naumast eða ekki verið
hreyft í ísl. blöðum, en vegna þess, að athygli mun vekja
margra lesenda MORGUNS, birtist meginmál þessarar
greinar brezka kirkjublaðsins hér.
Afrískur stjórnmálamaður, sem hlotið hefir menntun í
Bandaríkjunum, stóð í ræðustóli og sagði við áheyrendur
sína:
„Herrar mínir og frúr, kristindómurinn, sem Jesús
Kristur boðaði, er vissulega hin ágætasta trú. Þeim mönn-
um, sem vandlega lifa hann, er heitið eilífri sáluhjálp. En
sú tegund kristindóms sem hvítu mennirnir fluttu til Af-
ríku var rangfærður kristindómur, sem hafði það markmið
að þjóna nýlendustefnu hinna hvítu. Þetta var pólitískt
herbragð að kveldi nýlenduvaldsins, til þess ætlað, að slæva
hugi og hjörtu Afríkuþjóðanna og fá þær til þess að lúta
nýlenduvaldinu.
Hvítu mennirnir predikuðu fagnaðarboðskap hjálpræð-
isins. Þeir hvöttu Afríkumenn til þess að hefja augu til