Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 36
30
MORGUNN
sinn og sagði: „Þú getur fundið erfðaskrá mína hér
í frakkavasanum“. Þá hvarf hann. Um morguninn
vaknaði ég viss um það, að faðir minn hefði vitrazt
mér til þess að leiðrétta einhvem misskilning. Ég fór
inn í herbergi móður minnar til þess að gá að frakk-
anum, en sá að hann var horfinn. Móðir mín kvaðst
hafa gefið yfirfrakkann bróður mínum, John, sem á
heima í Yadkinfylki um það bil 20 mílum norðvestur
af heimili mínu. Ég held það hafi verið 6. júlí, næsta
mánudag eftir að mig hafði dreymt drauminn, að ég
fór á fund bróður míns í Yadkin, og þar fann ég frakk-
ann. Innri vasinn hafði verið saumaður aftur. Ég skar
upp nálsporin og óðara fann ég samanvafið blað, sem
þráður var bundinn utan um. Á blaðinu stóð með rit-
hendi föður míns þetta: „Lesið 27. kap. 1. Mósebókar
í gömlu Biblíunni hans föður míns“.
Ég var orðinn svo sannfærður um, að eitthvert leynd-
armál ætti að komast upp, að ég tók með mér votta,
þegar ég fór á fund móður minnar til að leita í gömlu
Biblíunni. Ég tók með mér nágranna minn, Thos.
Blackwelder, dóttir hans og dóttir mín voru einnig við-
staddar. Ég varð að gera talsverða leit heima hjá móð-
ur minni að Biblíunni. Loks fundum við hana í efstu
skúffu dragkistu einnar uppi á lofti. Bókin var svo
lasin, að hún datt í þrjá parta, þegar hún var tekin
upp. Hr. Blackwelder tók upp þann partinn, sem 1.
Mósebók var í, og fletti blöðum unz hann kom að 27.
kapítula. Þar höfðu tvö blöð verið brotin og lögð þann-
ig saman, að þau mynduðu hylki, og í þessu hylki fann
Blackwelder erfðaskrá þá, sem nú hefir verið staðfest
og tekin gild, (hún var dæmd gild í des. 1925).
I des. vitraðist faðir minn mér enn um það bil viku
áður en þessi erfðaskrá var dæmd gild. Hann virtist
vera í mikilli geðshræringu og sagði: „Hvar er gamla
erfðaskráin?" ....
Margir vina minna halda, að ekki sé unnt lifandi