Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 63
MORGUNN
57
garðinum, og ekki þekkt hann fyrr en hann ávarpaði hana,
tveir menn, sem voru á ferð úti á landsbyggðinni hefðu
lengi talað við hann, en ekki þekkt hann fyrr en hann
fór frá þeim o. s. frv. Hefði hann ekki talið þetta veika
vitnisburði og alla söguna ekkert annað en andatrúarrugl
úr spíritistum? Hvernig getur hann þá frekar trúað þessu
eftir tvö þúsund ár, þegar mörgum sinnum er erfiðara
að rannsaka sannleiksgildi sögunnar? Ég held í sannleika
sagt, að það séu engin líkindi til að hann geti fremur
trúað þessari gömlu upprisusögu en þeim, sem nýrri eru,
enda má minna á það, að jafnvel lærisveinar Krists trúðu
ekki fyrr en þeir sáu og þreifuðu á. En þetta sýnir hversu
sjón er sögu ríkari. Enginn efi er heldur á því, að sjálfur
Páll postuli var gæddur miklum miðilsgáfum, fór í trans,
sá sýnir, talaði við anda, og talaði tungum allra manna
mest eins og hann segir sjálfur frá í bréfum sínum. 1
söfnuðinum í Korinthuborg var sérstaklega mikið um
þessar andagáfur eins og lesa má um í 12. kap. I. Kor.
Enn verð ég að leiðrétta eina vitleysu og hún er sú,
að „spíritismi" hafi hvergi komizt inn í kirkjur nema á
Islandi. Þetta fer fjarri öllu lagi. Margir enskir prestar
og amerískir hafa verið sannfærðir spíritistar, jafnvel
biskupar, kórdjáknar og aðrir prelátar. Doktorar í guð-
fræði og frægir guðfræðiprófessorar hafa skrifað um
spíritisma og formála fyrir ritum spíritista. Enskir prest-
ar hafa skrifað bækur um spíritisma, gert tilraunir ára-
tugum saman, skrifað jafnvel stór rit ósjálfrátt í kirkjun-
um sjálfum. Oflangt mál yrði að þylja mörg nöfn, en
benda má t. d. á, að einn kunnasti prestur, sem nú er uppi
í London, dr. Leslie Weatherhead, sem um aldarfjórð-
ungs skeið var prédikari við City Temple, er sannfærður
spíritisti, þannig að hann hefur getið þess í ræðum, að
hann efist ekki um að náðst hafi samband milli lifenda
og dáinna. Og rétt um það leyti, sem ég skrifa þetta,
berst mér í hendur hefti af Reader’s Digest með grein
eftir einn frægasta prest New York borgar: Norman