Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 47
Listmálari verður miðill
★
Á vegum „Félags kirkjumanna um sálarrannsóknir"
er nýlega komin út bók, sem er rituð ósjálfrátt af Grace
Rosher, sem er kunnur listmálari með Bretum og hefir
mestmegnis lagt stund á að mála mannamyndir. Það kom
henni sjálfri gersamlega á óvart, að hún fór að rita
ósjálfrátt.
Hún segist hafa setið við skrifborð sitt og verið að
skrifa sendibréf, þegar hún heyrði — eða henni heyrð-
ist rödd segja við sig: „Láttu hönd þína hvílast og sjáðu
hvað kemur.“ Hún hætti að skrifa, penninn var í mátt-
lausri hendi hennar, en tók svo að hreyfast sjálfkrafa í
hendi hennar á blaðinu. Sér til mikillar undrunar kveðst
hún hafa lesið á blaðinu skiljanlega orðsendingu, er
tjáðist koma frá látnum vini hennar, er hafði andazt
vestur í Canada. Þetta gerðist haustið 1957, og ósjálfráða
skriftin hefir haldið áfram að koma fram á þennan dag.
Fyrst var hún eins og hikandi og óskýr, en varð smám
saman öruggari. Og þá fór þessi látni vinur — er tjáðist
vera — að segja henni frá andláti sínu og því, sem þar
hefði farið á eftir, umhverfi sínu og viðfangsefnum í
andaheiminum.
Grace Rosher varð í fyrstu undrandi og hún hafði
ímugust á þessum óvelkomnu orðsendingum, sem hún
hafði í byrjun enga trú á, að væru raunverulega frá
hinum látna vini. Hún vissi sæmilega mikið um undir-
vitundina og það, hvernig hún getur haft það til að leika
á fólk, sem við þessar tilraunir fæst. Og hana grunaði
fastlega, að hér væri verið að lokka hana til trúgirni.