Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 62
56
MORGUNN
sé kennd á vísindalegan hátt, og kjörorð þessarar vísinda-
stofnunar er einmitt hið sama og kjörorð Krists, að bera
sannleikanum vitni. Og í kapellu guðfræðideildarinnar
eru skráð þessi orð Krists: Sannleikurinn mun gera yður
frjálsa.
Ég hefi áður bent á það, að í mannheimum er enginn
altækur sannleikur til, hann er einungis að finna hjá
Guði. Spámenn Guðs og vitringar hafa þó reynt að opin-
bera mönnunum eitthvað af sannleikanum. Þessir spá-
menn eru af mörgum tungum og þjóðernum og styðja og
bæta hver annan upp og kenna í meginatriðum hið sama.
Þeir sem ekki skilja þetta, skilja heldur engan þessara
spámanna, og líta á trúna sem pólitík, þar sem sjálfsagt
sé að fjandskapast við „heiðna“ menn og útrýma þeim,
eins og t. d. pólitískir flokkar svívirða venjulega hver
annan og leitast við að útrýma þeim. S.A.M. segist reyndar
vilja virða önnur trúarbrögð af heilum hug, en ekki getur
það verið annað en látalæti, þar sem hann vill láta presta
þjóðkirkjunnar vísa þeim norður og niður. Þó er önnur
skýring hugsanleg og hún er sú, að hann viti ekkert hvað
hann er að segja, og þykir mér það sennilegast.
Kristindómur og andahyggja
Allir kristnir menn eru spíritistar að því leyti að þeir
trúa því, að lífið haldi áfram eftir líkamsdauðann, og að
Jesús Kristur hafi leitt í ljós lífið og ódauðleikann með
upprisu sinni. S.A.M. telur það svívirðu að bera saman
upprisu Krists og fyrirbrigði þau, er gerðust í frum-
kristninni við þau fyrirbrigði, sem andahyggjumenn hafa
til rannsóknar, en ekki reynir hann að rökstyðja það, enda
er þetta ekki annað en hreinn hleypidómur.
Það væri fróðlegt fyrir þennan höfund, að hugsa um
það stundarkorn, hvort honum mundi hafa dottið í hug
að trúa því, ef honum hefði í gær eða dag verið sagt
frá upprisu Jesú. Grátandi kona hefði séð hann í gras-