Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 38
32
MORGUNN
Þannig gerir þessi skýringartilgáta ráð fyrir því, að
yfirvitund frú Wriedts hafi leitað þessa allsherjarsafns
minninga hins liðna, líkt og menn leita til British Museum
— Brezka bókasafnsins — eftir margskonar upplýsingum
í bókunum þar. En í þessari leit hefir yfirvitund miðilsins
— gagnstætt því sem vér gerum í British Museum —
ekki notið aðstoðar bókavarðar og ekki notið hjálpar
snertingar, sjónar né heymar, þegar hún var að viða að
sér vitneskjunni um týndu erfðaskrána. 0g enn er því við
að bæta, að þar sem frú Wriedt var miðill fyrir beinar
raddir, þá var það ekki hennar rödd, heldur dularfull
rödd, sem ekki varð séð að framleidd væri með líkamleg-
um raddfærum, sem talaði og flutti vitneskjuna um erfða-
skrána.
Að öllu þessu athuguðu neita iðkendur parapsychologí-
unnar því samt, að þetta sanni nokkuð um framhaldslíf
kanadíska þingmannsins.
Það, hvernig Chaffin-erfðaskráin fannst, er þó ennþá
erfiðara að skýra „náttúrlegri" skýringu. 1 hinni ágætu
litlu bók sinni, Evidence of Purpose, segir frú Zoe Rich-
mond um það mál:
„Hér virðist um augljóst og gott samband við látinn
mann hafa verið að ræða. Þegar gamli maðurinn las 27.
kap. 1. Mósebókar (um Jakob, sem svíkur frumburðar-
réttinn af bróður sínum), sér hann eftir arfleiðslu-
gemingi sínum. Samt iðrast hann ekki nægilega mikið
til þess, að gjöra aðra, staðfesta erfðaskrá, en skrifar í
einrúmi erfðaskrá, sem hann felur síðan og felur tilvís-
unina um erfðaskrána á enn öðrum stað. Sú ákvörðun,
sem hann lét þannig í ljós með hálfum huga, virðist hafa
orðið ákveðnari með honum eftir andlátið og knúið hann
til þess að neyta hins ýtrasta til að koma vilja sínum
á framfæri".
Eins og höf. bendir á, er í þessu fólgin sönnun fyrir hug-
rænni starfsemi látins manns, en ekki sönnun aðeins fyrir