Morgunn


Morgunn - 01.06.1963, Page 10

Morgunn - 01.06.1963, Page 10
4 MORGUNN óskuðu þessarar breytingar vegna prestanna. Menn litu svo á, að ef veitingarvaldið yrði algerlega tekið af söfn- uðunum og helzt lagt í hendur biskups eins, ættu prest- amir meiri von um tilfærslur milli prestakalla, og þvi væri þetta miskunnarverk við klerkastéttina. Fyrir þá væri sjálfsagt að færa þá fóm, að söfnuðir yrðu sviptir rétti til að kjósa þann prest, sem hugur þeirra stæði helzt til. Mönnum þótti sumum þetta mannúðarverk við presta í afskekktum prestaköllum, og hver vill ekki vinna mannúðarverk ? En hér liggur annað að baki, sem margir . átta sig ekki á. í lúterskum kirkjum hefir er a ír ja ^ síðari árum verið harðlega unnið að nýrri — og þó gamalli — kirkjuhugsjón. Ýmsir virðast trúaðir á það, að til þess að afla kirkjunni aftur áhrifa, sem öllum kemur saman um að hún hafi misst, sé væn- legt ráð, að efla til vegs klerkakirkju, þar sem söfnuðirnir séu sem áhrifaminnstir um stefnu og kenningu kirkjunn- ar, en völdin séu lögð í hendur fárra, helzt þeirra, sem kirkjulegum embættum gegna. Að því hnígur sú mikla áherzla, sem þessir menn vilja leggja á embætti kirkj- unnar og áhrifavald þeirra. Vitanlega eru þeir menn til, sem fullnægju finna í slíkri kirkju, en hætt er við því, að slík kirkja einangrist frá miklum þorra íslendinga. Að skoðun margra, sem þessa kirkjuhugsjón aðhyllast, er fráleitt að söfnuðir megi með almennum kosningar- rétti hafa áhrif á skipun í prestsembætti. Slíkt er and- stætt hugsjón klerkaveldiskirkjunnar. Hvert stefna skal, var auðsætt af blaðagrein, sem hér var minnzt stuttlega __ . . , . á. Þar var því fagnað — og sýnist þó Kenmngafrelsi . . .* ,,, , ... * * hafa venð otimabær fognuður, — að kosningarétturinn væri tekinn af safn- aðarfólkinu, og jafnframt var krafizt þess, að prestar væru tafarlaust reknir úr embættum, ef þeir leyfðu sér að leita eftir sönnunargögnum fyrir því að menn lifi líkams- dauðann. Er þetta það, sem koma skal, að almenningur verði sviptur rétti til kosninga presta og prestarnir sviptir

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.