Morgunn - 01.06.1963, Qupperneq 24
18 MORGUNN
ara í að slá fram staðhæfingum, sem fyrir voru vafasöm
rök.
Á félagsfundum vorum hefi ég þrásinnis áður vikið að
þessu, en þetta langar mig til að félagsfólk geri sér fylli-
lega ljóst. Og á þessum tímamótum, þegar ég hefi látið
tilleiðast að taka við formennsku aftur, vil ég leggja á
þetta áherzlu. Ég skil vel löngun fólks eftir að fá tækifæri
til að sitja miðilsfundi. Ég skil vel, að fólki sé hugleikið að
ná ástvinasambandi fyrir hjálp miðla, þegar þess er kost-
ur og fylgt er þeim varúðarráðstöfunum, sem sjálfsagðar
eru. En sálarrannsóknafélög starfa yfirleitt ekki á þeim
grundvelli fyrst og fremst. Forystumönnum þeirra er ljóst,
að sumt það fólk, sem ákafast er í að sitja miðilsfundi, er
ekki ævinlega dómbært um sönnunargildi miðilssambands-
ins, og þessvegna leggja þessi félög, miklu meiri áherzlu
á hina fræðilegu hlið málsins, að gera sjálf tilraunir eða
fylgjast með því, sem hinir dómbærustu menn vinna, og
kynna það síðan félagsfólki sínu og öðrum.
Fyrir nokkru kom til mín einn vina minna, sem mikinn
áhuga hefir fyrir spíritismanum og mikla vinnu hefur lagt
fram til þess að kynna hann. Um markmiðið vorum við
sammála, en ekki um leiðirnar, og þessi ágæti maður
sagði hreinskilnislega við mig: „Þú hefir aldrei verið
spíritisti“.
Ég var honum raunar ekki sammála um það, enda hefir
þessi góði maður ekki verið félagi hér hjá oss í allmörg
síðustu árin. Ég leit svo á, og lít svo á, að það nái ekki
nokkurri átt, að starfandi miðill hafi starfið í sínum hönd-
um og ráði, hverjir sitja fundi hans. Ég myndi vera ófá-
anlegur til þess að koma að slíku starfi og sækja slíka
miðilsfundi, og ástæðan er sú, að ég hefi mér til raunar
og leiða margsinnis kynnzt því, einkum af lestri bóka,
hvert er hægt að leiða málið með slíkum starfsaðferðum.
Þær hafa opnað möguleikana fyrir mörgum þeim miðla-
svikum og blekkingum, sem mestum skugga hafa varpað
á spíritismann. Og mér er óskiljanlegt með öllu, að miðlar,