Morgunn


Morgunn - 01.06.1963, Page 32

Morgunn - 01.06.1963, Page 32
26 MORGUNN koma og heilsa honum, en samt sá hann frú R. öðruhvoru ganga hægt innan um mannfjöldann í móttökusalnum. Hann sá hana koma inn vinstra megin og sá andlit hennar allt greinilega, þar sem hún stóð um það bil 20 fet frá honum. En hún kom ekki til að heilsa honum. Hann bjóst við því, að hún væri enn í mannfjöldanum og myndi áreið- anlega koma til hans, og hann varð vonsvikinn. þegar móttökuveizlan leið án þess að hún kæmi til að heilsa honum. Þegar Mark Twain kom í fyrirlestrarsalinn um kveldið, var honum sagt, að einhver biði hans frammi í biðherberg- inu. Mark Twain fór þangað og óðara sá hann þar frú R. með um það bil tíu öðrum konum. Hún var nákvæmlega eins klædd og hún hafði verið í móttökuveizlunni þennan dag. „Ég þekkti yður óðara og ég sá yður við móttökuat- höfnina í dag — sagði hann við hana — og þér voruð eins klæddar þá og nú. Og þegar mér var sagt, að einhver biði mín hér í biðherberginu, sá ég óðara fyrir mér mynd vðar, klæðnað yðar og allt eins og ég sá yður í dag.“ En frú R. hafði alls ekki verið í móttökuveizlunni. Þá hafði hún verið í járnbrautarlest á leiðinni til Montreal, þar sem hún vissi, að hún mundi hitta hann. En samt sýn- ist hér hafa verið nokkuð annað á ferðinni en fjarhrif ein. öllu nær virðist að álykta svo, sem hér hafi verið um sálfarir að ræða, að frú R. hafi beinlínis farið úr líkam- anum og í veizlusalinn, þar sem skáldið sá hana. Enda bar margt það fyrir Mark Twain, sem sýnir, að hann var sál- rænum gáfum gæddur. Úr tímaritinu Tomorrow, 1962, 2. h.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.