Morgunn


Morgunn - 01.06.1963, Page 33

Morgunn - 01.06.1963, Page 33
Það, sem enginn jarðneskur maður vissi ★ Einrt víðkunnasti miðill, sem nú er uppi, er Geraldine Cummins, sem Morgunn hefir margsinnis getið. Hún er gáfukona og þaulkunnug bæði sálarrannsóknunum, eins og beztu menn hafa rekið þær, og rannsóknum þeim, sem nú eru reknar á margskonar sálrænum fyrirbærum undir nafninu ,,parapsychologie“. Fyrir fáum árum kom út bókin: Mind in Life and Death, eftir G. Cummins. Þar ritar hún bæði um sálræna reynslu sína og annarra þeirra, sem öruggast er að vitna til. Einn kaflinn í þeirri bók fjallar um þau fyrirbæri, sem bezt hafa þótt sanna eða sterkastar líkur leiða að framhalds- lífi. Sá kafli fer hér á eftir í íslenzkri þýðingu. * Vér vitum mjög lítið með vissu um, hve langt yfirvenju- legir hæfileikar manna ná. Þetta verðum vér að hafa með auðmýkt í huga, ekki sízt þegar meta skal þær miðlaorð- sendingar, sem virðast fjalla um efni, sem engum jarð- neskum manni voru kunn. Ég mun nú draga fram nokkur dæmi slík. Aðeins eitt þeirra f jallar um forspá. Áður en vér athugum þau skulum vér hafa það í huga, að það hefir fyrir löngu verið viðurkennt, að á f jarhrifum er ekki hægt að gefa skynsamlega skýringu að leiðum efnisvísindanna. Og ennfremur það, að yfirvitund manns- ins er ekki bundin við ákveðinn stað í rúminu, ekki háð fjarlægðum þess .... Vér vitum mjög lítið um, með hverjum hætti fjarhrifin

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.