Morgunn


Morgunn - 01.06.1963, Page 40

Morgunn - 01.06.1963, Page 40
34 MORGUNN Bóka- og blaða-sannanir Sumar bóka- og blaða-sannanir, sem fengizt hafa fyrir miðilsgáfu frú O. Leonards, gátu ekki komið frá nokkurs jarðnesks manns huga. Stjómandi hennar, Feda, benti fundarmönnum þrásinnis á bók, sem heima hjá þeim væri, sagði nákvæmlega, hvar bókin væri og hvað stæði á tiltek- inni blaðsíðu bókarinnar. Oft var einmitt það lesmál, sem hún sagði til um, mikið áhugamál þess látna manns, sem með þessu móti virtist vera að reyna að færa sönnur á, að þetta væri raunverulega hann. 1 nokkurum tilfellum slík- um hafði hvorki miðillinn né nokkur viðstaddur nokk- uru sinni lesið þessa bók eða opnað hana. Ég ætla að vitna hér í ummæli tveggja fyllilega dómbærra manna um þetta. Prófessor Gardner Murphy skrifar: „1 sumum tilfellum, þegar tekizt hefir hvað bezt, og bókina hafði hvorki mið- illinn né nokkur fundargesta lesið, sýnist útilokað að um fjarhrif milli íifandi manna sé að ræða . . .“. Séra Drayton Thomas segir: „Hér renna saman í tilrauninni tveir straumar þekkingar á þann hátt, að útilokar hina venju- legu, algengu tilgátu, að fjarhrif milli tveggja lifandi manna séu hér að verki“. Um blaðasannanimar segir próf. Murphy: „Hér er forspáin líka komin til skjalanna, því að stundum var það sagt fyrir í miðilssambandinu, hvað koma mundi á ákveð- inni síðu dagblaðs á næsta degi . . .“ Nú hafa tilraunir sannað, að vissir menn eru þeim hæfileika gæddir, að geta séð fyrir hið ókomna. Þess vegna getur á hvorutveggja verið möguleiki, að annað- hvort sé að verki, spádómsgáfa frú Leonards eða fram- liðnir menn. Hið merkilegasta við tilraunir þær, sem með frú Leon- ard voru gerðar, var það, hve bókarkaflinn, sem á var bent að lesa, lýsti vel þeim látnu mönnum, sem tjáðust standa á bak við tilraunimar. Efnishyggjumenn fullyrða, að mannshugurinn sé fram-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.