Morgunn


Morgunn - 01.06.1963, Side 56

Morgunn - 01.06.1963, Side 56
50 MORGUNN himins. Sagan um tómu gröfina á að styðja þessa hug- mynd og sagan um, að Jesús hafi látið lærisveina sína þreifa á naglaförunum í lófum sér, neytt máltíðar með þeim og svo framvegis. Þessar sagnir eru þó bæði rugl- ingslegar og mótsagnakenndar, þar sem jafnframt er frá því skýrt, að Jesús hafi gengið inn um læstar dyr, birzt þeim og horfið skyndilega. En það er í samræmi við þessa seinni hugmynd, sem „postullega“ trúarjátningin tók upp orðalagið: upprisa holdsins. Það er efalaust þessi síðari hugmynd, sem S. A. M. trú- ir, svo illa sem honum er við andana, og er það hin ein- stæða sérkristilega kenning, sem hann telur að ekki megi víkja frá. En gallinn á henni er bara sá, að enginn nú- tímamaður, sem nokkuð hugsar, getur trúað henni. Það jarðneska Messíasarríki, sem menn héldu að væri að hefjast, þegar þessar hugmyndir urðu til, kom ekki. Jesús kom heldur ekki í skýjum himinsins með tíu þúsund engla næstu daga eins og haldið var. Hvað getur maður þá hugs- að sér að yrði um hinn jarðneska líkama hans? Trúar- játningin segir, að hann stigi upp til himins. Svona gátu menn trúað fyrir þúsundum ára, þegar menn héldu að him- ininn væri bara nokkur hundruð faðma fyrir ofan jörð- ina. En ef menn tryðu nú á slíkt efnislegt himnaríki, yrði að leita þess mörg ljósár úti í geimnum. Mundi nokkur jarðneskur líkami þola slíkt ferðalag óvarinn fyrir frosti og bruna, matarlaus og súrefnislaus, í heljarauðnum Ginn- ungagaps? Og þó að bjarga ætti málinu við með því að líta á þetta sem eitthvert stórkostlegt kraftaverk, sem enginn skildi, þá sýndist það vera ástæðulaust kraftaverk. Kenning Páls um dýrðarlíkamann er miklu aðgengilegri. Hver mundi kæra sig um, sem sálaðist gamall og hrum- ur, að ganga þannig aftur? Römmustu draugasögur vor- ar segja að vísu frá slíkum afturgöngum, en fáir nú til dags nema þá S. A. M. mundu byggja vonir sínar um framlíf á slíkum hugmyndum. Forfeður vorir trúðu því, að jafnvel goðin köstuðu ellibelg öðru hverju. Og í Heilagri

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.