Morgunn - 01.06.1963, Qupperneq 58
52
MORGUNN
mjög tíðkað af fræðimönnum að flokka ýmis fyrirbæri
náttúrunnar til að reyna að átta sig betur á þeim. En á
þessu stigi enda líka vísindin fyrir mörgum. Þeir horfa
ráðalausir á flokkunina og gefast svo upp, reyna ekki að
finna leyndardóminn á bak við. En það skiptir mestu
máli í trúarbrögðum. Hvaða gagn er svo sem í því að
flokka sundur heiðna miðla og kristna miðla? Vísindin
byrja fyrst, er menn koma auga á, að það eru alveg sams
konar fyrirbrigði, sem gerast hjá báðum. Enn meiri vís-
indi væru það að gefa viðhlítandi skýringu á, af hverju
þessi fyrirbrigði stafa, hvort þarna eru að verki einhver
ókunn öfl í manninum eða utan við hann. Þetta er ekki
hægt að gera nema með rannsóknum. En hvernig er unnt
að framkvæma þær rannsóknir, ef þorri manna er hald-
inn þeim hleypidómum, að rannsóknirnar séu óguðlegar,
eða neitar því að óathuguðu máli, að fyrirbrigðin gerist,
eða ætlar alveg að brjálast, þó ekki sé gert annað en
minnzt á þetta mál blátt áfram? Enn eimir eftir af menn-
ingaranda þeirrar aldar, sem brenndi Bruno, vegna þess
að hann hélt því fram, að jörðin væri hnöttótt, og að til
væri fleiri sólkerfi en það, sem jörðin tilheyrði. En þó að
ösku hans væri dreift út í veður og vind, var það hann,
sem vann sigur.
Komast hrímþursar til himins?
Svo segir í Gylfaginning, að upp á himininn mundu
ganga hrímþursar, ef öllum væri fært á Bifröst, sem fara
vilja. Margir staðir eru á liimni fagrir og þar er allt guðleg
vörn fyrir. Tröllin hrapa af himinbrúnni. Hún er ekki fær
öðrum en Einherjum, sem hraustlega höfðu barizt á jörð-
inni.
I þeirri trú, sem S. A. M. vill láta íslenzka presta kenna,
er reyndar gert ráð fyrir, að allir menn hafi frá falli
Adams fæðzt gerspilltir og guði fjandsamlegir með til-
hneigingar til ills eins, enda fari þeir yfirleitt til helvítis