Morgunn


Morgunn - 01.06.1963, Side 70

Morgunn - 01.06.1963, Side 70
í formála bókar sinnar, Honest to God (Heiðarlegur gagnvart Guði), sem geisilegu róti hefir komið á brezku kirkjuna, segir höf. dr. J. A. Robinson biskup í Woolwich, Suður-London: Ég held að á næstu árum verðum vér kallaðir til annars og miklu stærra hlutverks en þess að klæða hinn erfða- bundna rétttrúnað í nútímabúning. Ef trúvörn vor verður ekki önnur en sú, er sennilegt að við verðum viðskila öllum öðrum en fámennum flokki trúaðra manna .... Það var ofsalega ráðist á dr. Alec Vidler fyrir erindi, sem hann flutti í brezlca útvarpinu fyrir skömmu, en ég held að því miður hafi lokaorð hans geymt of mikinn sannleika, þar sem hann sagði: „Vér eigum framundan langa leið út úr ógöngunum, svo mjög hefir verið bæld nið- ur í kirkjunni raunverulega djúp hugsun og ráðvendni og árvekni í hugsun“. Ég hefi enga tilhneigingu til þess að brígsla um óheiðarleika þeim mönnum, sem aðhyllast gaml- ar erfðahugmyndir um guðleg efni og siðgæði — ég að- hyllist að mjög miklu leyti þessar hugmyndir sjálfur. En ég harma ofstæki sumra þeirra, sem verja sína trú með því, að brennimerkja sem fjandmenn þá samherja í trúnni, sem ekki geta orðið þeim samferða um hinar gömlu hug- myndir. Undir niðri eru þeir sjálfir engan veginn algerlega vissir í sinni sök.... Því nær allt, sem sagt hefir verið innan kirkjunnar síð- astliðna öld, hefir eftir á reynzt of íhaldssamt. Það sem ég hefi verið að reyna að segja, í tilrauna- og skýringa- skyni, kann að virðast of róttækt, og sumum kann að þykja það hrein villutrú. Það eina, sem ég er alveg viss um, er það, að síðari tímar muni sanna, að það, sem ég hefi sagt, var ekki nægilega róttækt.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.