Morgunn


Morgunn - 01.06.1967, Page 21

Morgunn - 01.06.1967, Page 21
MORGUNN 15 En til þess að geta skilið þetta, að allir hlutir eru nýir og verðandi, þurfum við að geta gert okkur ljóst, að það er ætið eyða eða tóm á milli allra fyrirbæra bæði í heimi efnis og anda. Indverska skáldið og spekingurinn Rabindranath Tagore segir: „Þegar ég hef skapað hugsun minni ákveðið form, þá verð ég að losa mig við hana. Ég vil hafa fullkomið frelsi til þess að skapa ný form nýjum hugmyndum. Ég er sannfærður um það, að líkamsdauðinn felur í sér þetta sama frelsi okk- ur öllum til handa. Hinn skapandi kraftur sálarinnar verð- ur að fá að njóta sín í nýju formi ... Lífið verður að vaxa upp úr og út yfir sinn dvalarstað á jörð. Annars fá hin stöðn- uðu form yfirhöndina og það verður að fangelsi. Maðurinn er ódauðlegur. Þess vegna verður hann stöðugt að deyja. Því lífið er eilífskapandi. Það nýtur sín aðeins í síbreytileg- um formum“. Líkamsdauðinn er hið skapandi bil á milli okkar jarðnesku tilveru og þeirra nýju, sem við tekur. Slík skapandi bil eða eyður eru á milli alls, sem gjörist. Þau eru á milli hugsunar og orða. Þau eru á milli allra þeirra mismunandi forma, sem þessi tilvera birtist í. Venjulega brúum við þessi bil sjálfir þannig, að við tökum ekki eftir þeim og tengjum allt saman í heild í vitund okkar. En bil dauðans er of breitt til þess, að við getum brúað það án þess að taka eftir því. Þess vegna óttumst við dauðann og finnst hann rjúfa samhengi lífsins. Sannieikurinn er sá, að sál okkar er ekki fyrst og fremst eilíf í þeim skilningi, að líf hennar sé ævarandi og samfelld heild í tímanum. Hún er eilíf í þeim skilningi, að hún er ódauðleg og hafin yfir tímann. Þess vegna á hún sér ekkert upphaf og engan endi í tímanum. Það, sem við skynjum sem áframhaldandi heild, heyrir tímanum til. Hugsun okkar krefst þess, að það eigi bæði sitt upphaf og sinn endi. Þess vegna getur heldur ekki lífið verið ódauðlegt í tímanum. Það hlýtur að eiga þar upphaf og endi einhvers staðar. Sjálfur ódauðleikinn hlýtur því að vera
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.