Morgunn - 01.12.1973, Page 56
134
MORGUNN
þekkir ekkert til hans, og aldrei hafði hann komið þar og ekkert
af því fólki, sem á fundinum sat.
27. febrúar 1947.
Elínborg Lárusdóttir.
FRANSKI SPÍTALINN
HvaS var á loftinu, í kjallaranum og líkhúsinu?
Gagnfræðaskóli Austurbæjar var í mörg ár í Franska spítal-
anum við Lindargötu. En þar hafði, eins og nafnið bendir til, í
allmörg ár verið rekið sjúkrahús.
Stofurnar á miðhæðinni voru notaðar sem kennslustofur. En
húsið er aðeins niðurgrafinn kjallari og hæð og ris. f einu her-
bergi í risinu voru geymdar myndir og áhöld, sem notaðar
voru við kennslu nemenda. Varð því að flytja þessi áhöld til og
frá eftir þörfmn. Kom það oft i hlut eins nemandans, sem var
umsjónarmaður í bekknum og við nám í skólanum.
Hann gerði það þvernauðugur að fara þessar ferðir. En taldi
sig ekki geta skorazt undan þeim. Þegar hann var uppi á loft-
inu, varð hann alltaf hræddur, þótt hann sæi ekkert og vissi
ekki af hverju þessu hræðsla stafaði. Eitt sinn, er hann var
sendur upp á loftið í þessum erindum, varð hann ákaflega
hræddur, er hann kom úr herberginu, sem kennsluáhöldin
voru geymd í, og þegar hann gekk fram ganginn fannst hon-
um einhver vera á eftir sér. En þá er sagt við hann:
„Líttu ekki við“.
Þessi orð heyrir hann endurtekin aftur og aftur í eyru sín
meðan hann gengur fram ganginn og niður í miðjan stigann.
Þegar niður kom, styður hann sig upp við handriðið, því hon-
um fannst hann alveg vera að hníga niður. Þama þyrptust
skólasystkini hans að og spyrja hvort hann sé veikur.
„Það er ósköp að sjá þig“, sögðu þau, „þú ert náfölur, en þó
kófsveittur“.