Búfræðingurinn - 01.01.1941, Síða 43
BÚFRÆÐINGURINN
39
1) Uppdrátturinn meS skurSakerfinu, samræmdu viS legu þess
á landinu.
2) Þverskurðar^ og lengdarskurðateikningar af hinum einstöku
skurðum framræslukerfisins.
3) Hæðatöflur með rýmisútreikningi, sem gefur upp, hvernig
hver skurður á að grafast. Hvernig ruðningi skuli fyrir komið.
4) Verklýsing, hvernig lokræsi skuli gerð, dýpt þeirra og úr
hverju efni leiðsla þeirra sé gerð, hvernig innbyrðis afstaða þeirra
sé og frágangur við samskeyti þeirra við opna skurði.
5) Sundurliðuð kostnaðaráætlun um verkið.
6) Verklýsing og áætlun, ef mannvirki þarf að gera, er standa í
sambandi við framræsluna, brýr, stíflur, flóðlokur o. fl.
7) Þátttakendaskrá, ef fleiri en einn landeigandi er þátttakandi
verksins, og hve stórt svæði tilheyri hverri einstakri eign.
Að loknum framkvæmdum ber að samræma uppdrættina við
framkvæmd verksins, ef breytingar hafa verið gerðar um legu
mannvirkja meðan á framkvæmd verksins stendur.
C. Farvegir vatns.
Farvegir vatns eru annað tveggja sjálfgerðir frá hendi nátt-
úrunnar, þegar vatnið hefir fundið sjálfgerða lægð til að renna
eftir, eða grafið sér farveg i gegn um landið, eða þeir eru til-
búnir, þá er vatninu hefir verið grafin opin leið með hand-
afli eða vélum. Þessir farvegir eru nefndir opnir skurðir.
a. Náttúrlegir vatnsfarvegir.
Vatnið sjálft er stöðugt að mynda sér farvegi, breyta legu á fari
sínu eða dýpka það. Þannig myndast siki, lækir og ár.
Lögun slikra farvega er jafnan óregluleg, en við undirbúning
framræslu kemur oft til greina athugun á vatnsrennsli þeirra og
aðstöðu til breytinga á því.
Lína sú, sem myndast milli yfirborðs á vatninu og landsins með-
fram hliðum farvegs, er nefnd vatnsborðslina. Yfirborðsflötur
straumvatns kallast straumborð, en straumlína er lína, sem dregin
er eftir yfirborði straumborðs, þar seni straumhraði vatnsins á yfir-
borði er mestur. Þegar ár- eða lækjarfarið er meira eða minna
reglulegur bogflötur, kallast öll breiddin botnflötur farvegsins. Þar
sem bakkar liggja að farvegi, með eða án fláa, er greint á milli botn-
flatar og hliðflata á sama hátt og i opnum skurðum. 1 síkjum og
lygnum vötnum er yfirborð vatns kallað vatnsborð, og er greint
á milli hámarks- og lágmarksvatnsstöðu, bæði i straumvötnum,
sikjum og stöðuvötnum. Venjulegt vatnsborð er sú vatnsstaða, sem