Búfræðingurinn - 01.01.1941, Side 65
BUFRÆÐINGURINN
(51
metrar við framræslu til túnræktar en á áveitusvæðum 0,80—
1,10 metrar. En jafnan skal grafa þá á fast ef unnt er.
Hliðflái jaðarskurðanna er hafður 1:0,75 í mýrarjarðvegi,
en þar, sem þeir fara í gegnum mela- eða holtajörð og í laus-
um moldarjarðvegi og mjög blautum mýrum, sé fláinn 1:1.
í vel samfelldum svarðarmýrum getur lcomið til greina, ef um
lítið aðrennslisvatn er að ræða, að nota hliðfláa 1:0,5.
Liggi jaðarskurður í miklum hliðarhalla, þar sem gera má
ráð fyrir framsigi á el'ri hliðfleti skurðsins, getur komið til
greina að grafa skurðinn í byrjun með meiri fláa þeim megin.
Þar sem lækir eða samfellt ofanjarðarvatnsrennsli keinur
i jaðarskurð frá mjög hallandi farvegi, er nauðsynlegt að
tryggja liliðar og boln með grjótlagningu, sem fellt er inn í
hliðarnar og botninn.
Liggi jaðarskurðir út til sjávar, vatna eða tjarna, er hafa
mjög breytilega vatnsstöðu, en skurðurinn sjálfur er lagður
með litlum halla, er nauðsynlegt að tryggja að ekki flæði
inn í skurðinn við vatnsstöðuhækkun, því afleiðingin af slíku
verður, að í skurðinn ber leir og eðju, svo viðhaldið eykst en
notagildi hans minnkar. Þetta er gert með því, að í útrás
skurðsins er sett sjálfvirk flóðloka.
2. Affallið.
Hlutverk affallsskurða er að taka móti vatninu frá öllu
skurðakerfi framræslusvæðisins og leiða það burtu, annað
tveggja til vatnsfarvegar, sem er til staðar, eins og ár, gil eða
graflækir eða út til stöðuvatna eða sjávar, en stundum til
staða utan framræslusvæðisins, þar sem vatnið ekki veldur
tjóni.
Ef um lílið framræslusvæði er að ræða, liggur venjulega
ljósl fyrir, hvernig er bezt að leggja affallsskurðinn, en með
mælingum verður að tryggja að skurðurinn fullgerður geti
fullnægt eftirtöldum kröfum: