Búfræðingurinn - 01.01.1941, Blaðsíða 119
BÚFRÆÐINGURINN
115
verið mjög mismunandi, en
fer varla yfir 30 metra, og
hliðarhalli ]>eirra 4—8%
Enn er ástæða til að benda
á ]>á aðferð, þar sem sam-
einaðar eru í einu kerfi
straumveita og flóðveita.
hessu er viða hægt að koma
við á engjum hér. Sérstak-
lega er ástæða til að nota l>að,
þar sem skiptist á i landinu
lítið hallandi svæði og land
með meiri halla á milli ]>ess-
ara svæða. Þetta er gert með
]>eim liætti, að flóðgarðar ern
lagðir á hentugum stöðum
eins og venjulega þegar um
flóðveitu er að ræða, en bilið milli flóðgarðanna og hæðamunur er haft
meira cn svo að vatni frá garði til garðs, og cr ]>á inntaka vatnsins i
áveituhólfið höfð fast neðan við efri fióðgarðinn og vatninu veitt i
grunnum, láréltum skurði meðfram honum og látið seytla út yl'ir baklca
hans, og því svo dreift með seytlurennum, sem lagðar eru eftir þvi
sem þörf er á, til að jöfn drcifing fáist yfir allt svæðið, er liggur milli
flóðgarðsins og flæðisins í hólfinu.
12. mynd. Tniskipt straumvcita.
2. Flóðveita.
Flóðveita er sti veitugerð nefnd, þar sem vatnið stendur
kyrrstætt í samfelldum flæðum yfir landinu. í sinni frum-
stæðustu gerð er flóðveitan útbúin með þeint hætti, að vatns-
farvegur sá, sem notaður er til áveitu, er stíflaður með flóð-
lokum við lægstu takmörk þess svæðis, sem veitt er á. Verður
slíkri veitugerð því aðeins við komið, þar sem halli landsins
út frá farveginum, bæði til hliðar og upp með honum, er lítill.
Á þennan liátt er fengið samfellt áflæði á stærra landsvæði, og
grunnvatnsstöðuhækkun að einhverju leyti út frá því, á öllu
því landi, sem liggur jafnt eða litið eitt hærra en hið hækkaða
vatnsborð við stifluna. Þessi aðferð er sumstaðar notuð er-
lendis fram til þessa dags, og liefir verið notuð hér á landi
einkum norðanlands, í Þingeyjarsýslum.
Þessi aðferð er ekki ráðleg nema sérstaklega góð aðstaða
sé. Sé stíflustæði ekki því betra og ef bakkar farvegar út frá
stíflunni eru gljúpir, svo vatn sígur í gegnum, þá verður hætta
á því, að farvegurinn smámsaman grafi sig fyrir enda stífl-
unnar og myndi utan við hana neðanjarðar rennsli.
L