Búfræðingurinn - 01.01.1941, Page 127
BÚFRÆÐINGURINN
123
springur og um leið verður rótarslit á jurtunum. Hættan af
þessum ástæðum minnkar eftir því sem seinna er veitt af.
2) Skaðlegur straumur myndast í áveituhólfunum, grasið
leggst undan straumnum, botnfallið í áveituhólfinu færist til
og þetta tvennt samverkandi gerir, að gróðurinn á erfitt með
að reisa sig og getur komið fram rotnun í honum áður en
hann rís við aftur.
3) í þurrkavorum getur landið þornað of fljótt, ef áveitan
er látin gerþorna um leið og veitt er af.
Aðalatriði er að velja tímann til að veita af helzt þannig
að það sé hlýtt og rakt veður, og að láta afrennslið fara fram
liægfara með því smám saman að lækka vatnið í áveituhólf-
unum.
F, Áveitur til vökvunar.
Notkun vatns til vökvunar kemur lil greina bæði við engja-
rælct og túnrækt. Við akuryrkj u og þó sérstaklega við garð-
ræktina, bæði við úti og inniræktun garðjurta, er aðstaða til
að hafa vatn til vökvunar skilyrði arðbærrar ræktunar.
Til vökvunar er nothæft allt vatn, sem er laust við öll slcað-
leg efni og efnasambönd, er draga úr eða hindra eðlilegan
þroslca gróðursins. Það er þýðingarmikið atriði við þessar
ræktunarl'ramkvæmdir, að nóg vatn sé til umráða, og eink-
um þó, að ekivi verði þurrð á því í þurrkatíð, því þá er vatns-
þörfin mest.
Eitt þeirra atriða, sem eru ákvarðandi um notagildi vatns-
ins til vökvunar, er hitastig þess, sé vatnið hlýtt er það betra,
því þá eru upplausnarliæfileikar þess meiri.
Notkun vatns til vökvunar er alveg sérstaklega miðuð við að
fullnægja vatnsþörf gróðursins svo hann haldi áfram eðli-
legum vexti, þrátt fyrir þó náttúran sjálf hafi að þessu leyti
búið honum lalcari kjör en hann gerir kröfu til, annað hvort
með vöntun á nægilegu regnmagni eða með óhagstæðri skipt-
ingu úrlcomunnar.
Völcvun gróðursins er framkvæmd eftir mismunandi aðferð-
um, og hver aðferð er valin, fer eftir staðháttunum, þar sem
gróðurinn vex, og verðmæti hans. Við engjarækt og túnrækt
er eklci hægt á arðbæran hátt að gera jafndýrar ráðstafanir,
eins og unnt er að gera við akuryrkju eða garðrækt.