Búfræðingurinn - 01.01.1941, Qupperneq 141
BÚFRÆÐINGURINN
135
Þannig er því varið með þær upplýsingar, sem ég hefi hér
fram að bera, og til þess að létta lesandanum þetta mat, vil
ég byrja á því að geta þess lauslega, er sérstaklega hefir
áhrif á áburðartímann, og við hvaða skilyrði mín reynsla
er fengin, en það skal tekið fram, að ég ræði hér aðeins
um búfjáráburð.
1. Jarðvegurinn. Sé jarðvegurinn gljúpur og sendinn er
honum hætt við efnatapi, og er þá nauðsynlegt, að gróðurinn
geti notað frjóefni áburðarins jafnskjótt og þau leysast upp,
því ella er hætt við að þau tapist. Á slíkri jörð hentar vor-
breiðsla vafalaust bezt. Yfirleitt er þó sennilegt, að efna-
tökuafl íslenzks jarðvegs sé mjög mikið, vegna þess, hve
auðugur hann er al' ísaldarleir, fíngerðum fokefnum og
liúmus.
2. Úrkoman. Þar sem úrlcoma er mikil, notast torleystur
áburður fyrr og betur en í þurrviðrasveitum, en á úrkomu-
svæðum er líka nokkur hætta á burtskolun verðmætra efna
áburðarins, ef langt líður frá því hann er borinn á og þar til
hann getur komið jurtum að notum.
3. Hitinn. Áhurðurinn þarf skemmri tíma til að rotna og
leysast í hlýju loftslagi en köldu, og kemur þetta vafalaust
mest til greina hér í sambandi við haustbreiðslu, sem getur
verið varhugaverð, þar sem miklir uinhleypingar og þíð-
viðri ganga á veturna.
4. Landslag. Haust- og vetrarbreiðsla áburðar getur verið
varhugaverð á brattlendum túnum, og þó einkum þar sem
húast má við miklu vatnsrennsli í leysingum. Oft má fyrir-
hyggja slíkt vatnsrennsli yfir túnin með smáskurðum eða
vatnsrennum, og er sjálfsagt að gera það, því slíku vatns-
rennsli fylgir oft mikil kalhætta.
Reynsla mín er fengin við mjög þurra veðrátlu, eftir því
sem hér líðkast. Meðalársúrkoma á Akureyri mun vera um
400 mm, og eru vormánuðirnir tiltölulega þurrastir. Jarð-
vegurinn er mest dálítið leirblandinn móajarðvegur, eða vel
þurrkaður mýrajarðvegur. Vetrarveðráttan er fremur stað-
viðrasöm og köld.
Spurningin, sem ég ætla að reyna að svara að nokkru,
verður á þessa leið: Hvenær er heppilegast að bera mykju
og hland á tún við skilyrði lík þeim, sem eru í nágrenni
Akureyrar?