Búfræðingurinn - 01.01.1941, Qupperneq 143
BÚFRÆÐINGURINN
137
Haustbreiðsla
Sept. Okt.
47,9 40,8
Vorbreiðsla
Apríl Alaí
34,1 31,8
Haustbreiðslan er miklu betri en vorbreiðslan, en þó lang-
bezt, þegar borið er á þíða jörð.
Af þessum tilraunum má draga þá ályktun, að í öllum
þurrviðrasamari sveitum sé æskilegast að bera á túnin á
liaustin, sé jarðvegur ekki sendinn eða ástæða til að óttast,
að hann skolist burtu með leysingarvatni. Ennfremur er
sennilega dágott að bera á síðari hluta vetrar, þegar jörð er
auð og að einhverju leyti þíð. Vorbreiðslan er vafalaust
áfallasömust og því réttmætt að draga sem mest af búfjár-
áburðinum (mykjunni) til haustbreiðslunnar. Bera á áður
en jörðin frýs og lireyta jafnóðum.
Þelta, sem nú hefir verið sagt, gildir fyrst og fremst um
mykjuna, og má ætla, að líkt sé, þegar þvagi og mykju er
safnað í einu lagi, en annað getur gilt, þegar þvagið er notað
eitt sér, sem nú er að verða alltítt og er æskilegast.
Undanfarin ár hafa verið reyndir í Tilraunastöðinni á
Akureyri 4 mismunandi áburðarlímar á hlandi: Haust-
hreiðsla, vetrarbreiðsla, vorbreiðsla og suinarbreiðsla milli
slátta. Alltaf hefir verið reynt að dreifa hlandinu í sem hag-
stæðustu veðri, kyrru, köldu og sólarlitlu, til þess að draga
sem mest úr uppgufun ammoníaksins. Hér um slóðir er lang-
Vandgæfast að fá hentugt veður á vorin. Veður getur verið
hagstætt fyrir hlanddreifingu, þótt eigi rigni, sé það kyrrt,
sólarlaust og svalt, en þar sem slíkt veðurlag oft fylgir úr-
komu og úrkoman líka er hagstæð fyrir dreifinguna, gefur
úrkomumagnið á hverjum stað yfir vormánuðina góða
hugmynd um, hvernig skilyrðin séu þar á vorin til að hera
á hland og annan foraráburð, eða jafnvel búfjáráburð yfirleitt.
Eftirfarandi tafla sýnir meðalúrkomu í apríl, maí og júní á
veðurathugunarstöðum á mið-Norðurlandi og jafnmörgum á
Suðurlandi. Flestar tölurnar byggjast á 11 ára meðaltali.
Úrkoman í mm.
Samlals Árs- Mcðaltal
Veðurathugunarstaður Apríl Mai Júni 3 mán. úrkoma ára
Blönduós ........ 23,4 17,8 32,7 73,9 505 7—10
Akureyri ........ 32,5 14,6 25,8 72,9 489 9—11
Húsavík ......... 23,7 18,5 47,4 89,6 586 10—11