Búfræðingurinn - 01.01.1941, Page 147
B Ú F R Æ Ð I N G U R I N N
141
Þau frumefni, sem sýnt er og sannað að lífsnauðsynleg
séu bæði jurtum og dýrum eru: kolefni, súrefni, vatnsefni,
köfnunarefni, brennisteinn, fosfor, kalcíum (kalk), járn,
kalíum og magníum. Auk þessara lífsnauðsynlegu frumefna
eru í öllum jurtum og dýrum frumefni, sem sum hver geta
baft mikla þýðingu og ber af þeim helzt að tilnefna: joð,
klór, natríum, kísil og flúor.
Meginhluli þeirra frumefna, er finnast í jörðu og legi, eru
þar tengd eða bundin saman á margvíslegan hátt í margs-
konar efnasambönd.
Aftur á móti eru þau frumefni, er finnast í lofti, að mestu
leyti óbundin eða frjáls.
1 jurta- og dýra-likömunum eru frumefnin tengd eða bund-
in saman á margvíslegan hátt í margskonar efnasambönd.
Mjög gott er að þeir menn, sem við skepnuhirðingu fást,
hafi nokkra þekkingu í efnafræði, sömuleiðis í líffæra- og
lífeðlis-fræði. Sem betur fer, þá hafa nú orðið allmargir ein-
hverja þekkingu í þessum fræðigreinum.
Vel má vera að sumum finnist, að ekki muni vera þörf
á slíkri undirstöðufræðslu. En hinum sörnu mönnum má þá
segja, að það sé illa á haldið, verði menn ekki meiri og
hæfari í starfi, með því að hafa hana. Til þess að líkaminn
vaxi, geti myndað afurðir, haldizt óskemmdur og sem lengst
óbreyltur, verður hann að fá í fóðrinu þau frumefni eða efna-
sambönd, sem hann er byggður og afurðirnar myndaðar úr.
Eigi því fóðrunin ekki að verða tómt handahóf, þá þurfa
menn líka að gera sér grein fyrir, hver skilyrði séu þess, að
líffæri dýranna geti breytt og hagnýtt el'nasambönd fóðursins.
Efnasamböndum þeim, sem finnast í jurtum og dýrum,
þótt mjög mörg séu, má skipa saman í 6 aðalflokka og eru
þeir þessir:
1. Vatn.
2. Köfnunarefnissambönd.
3. Ivolvetni.
4. Fita.
5. Steinefni (sölt).
6. Lífefni eða vitamín.
Vatnið, þetta tæra fljótandi efnasamband, sem í eru tvö
frumefni, vatnsefni og súrefni, hefir margvíslega þýðingu
fyrir jurtir og dýr. Fyrir dýralílcamann er það engu siður