Búfræðingurinn - 01.01.1941, Qupperneq 149
BÚFRÆÐINGURINN
143
ekki fullgild, vegna þess að oft vantar, þegar hún liðast sund-
ur, eina eða fleiri amínósýrur. I fullgildri eggjahvítu eru 25
amínósýrur.
En að því er virðist, þá hefir náttúran vísdómslega raðað
þessu þannig niður, að sjaldgæft er, að hinar sömu aniínó-
sýrur vanti, er eggjahvítusameindir frá Lveim eða fleiri fóður-
tegundum liðast sundur í amínósýrur. Af þessu verður þá
Ijóst, að fóðurtegundirnar geta hælt úr vöntun hver annarar.
Af þessum ástæðum hefir því aftur og aftur verið brýnd
i’yrir mönnum nauðsyn þess, að leitazt sé við að hafa fóðrið
sem l'jölbreyttast, fóðra ekki með einni einstakri fóðurtegund.
Auk þeirra sérstarfa, sem eggjahvítan hefir í líkamanum
og nú liefir lítillega verið drepið á, þá getur melta og upp-
sogaða eggjahvítan liðazt sundur í líkamanum og myndað
fitu, kolvetnissambönd, hita eða afl.
Af 1 grammi eggjahvítu myndast við fullan bruna 5,71
hitaeining. Við sundurliðun hennar og' bruna í líkamanum
4,1 hitaeining. Þessi mismunur stafar af því, að þegar ekki
er um sérstörf eggjahvítunnar að ræða, þá notast hin melta og
uppsogaða eggjahvíta ekki að öllu leyti í líkamanum, heldur
berst nokkur hluti hennar ónotaður hurt úr líkamanum.
Þá hafa nákvæmar rannsóknir leitt í Ijós, að eggjahvítu-
efnin og önnur köfnunareínissambönd hafi áhrif á melt-
inguna, þannig að öll meltanleg efni fóðursins meltist bezt,
þegar víst hlutfall er á milli næringarefnaflokkanna þriggja,
köfnunarefnissambands, fitu og kolvetna í fóðrinu.
Þetta næringarefnahlutfall reilcnast þannig, að fitan er
margfölduð með 2, þá um heyfóður er að ræða, en með 2,2
þegar um lcjarnfóður (þ. e. fóður, sem í litlu rúmmáli inni-
heldur mikið af auðmeltri næringu) er að ræða og lögð við
kolvetnin. 1 þá upphæð er síðan deilt með köfnunarefnis-
sambandsmagninu.
Sem dæmi hér skal tekið hveiti, er inniheldur 1,2% feiti,
04% kolvetni og 10,5% köfnunarefnissambönd.
Næringarhlutföllin reiknast þá þannig:
(1,2 X 2,2) + 64,0 _ 2,64 + 64,0 66,64
= 6,3 eða 1 : 6,3
10,5 10,5 10,5
Útkoman sýnir, að í hveiti þessu er 1 hluti köfnunarefnis-
sambanda á móli 6,3 hlutum fitu og kolvetna. Næringar-