Búfræðingurinn - 01.01.1941, Síða 151
BÚFRÆÐINGURINN
145
mynda alla vefi og flestalla vökva likamans og halda þeim
við. Þá eru þau nauðsynleg við alla afurðamyndun. Þýðingar-
mest eru kalcíum (= kalk), fosfor og járn, og má þessi
efni því aldrei vanta.
Lifefnin eða vitamín er álilið að liafi eklcert eiginlegt nær-
ingargildi, en uppleysandi og temprandi áhrif.
Menn þekkja ekki að neinu verulegu ráði samsetningu
þeirra, en vel eðli þeirra og áhrif á jurtir og dýr. Þeim má
skipta í marga flokka eftir eðli þeirra og áhrifum t. d. A,
B1 til 137, C, D, E, F, H, J, K, L o. 11. Öll eru efni þessi talin
lífsnauðsynleg. Vanti þau eða of lítið sé af þeim í fæðu eða
fóðri, koma fram sjúkdómseinkenni og sjúkdómar, er þessi
efni ein geta bætt. Þau má því alls ekki vanta í fóðrið
fremur en önnur efni þessi.
Fóðurtegundir.
Þess er áður getið, að efnasamböndum þeim, er finnast i
jurtum og dýrum, megi skipa saman í 6 aðalflokka, og hefir
þeirra allra verið að litlu getið hér að framan.
Skýrsla sú, er hér fer á eftir, sýnir efnasamsetning nokk-
urra fóðurtegunda úr jurta- og dýra-ríkinu, og hve mikið
má búast við að sé meltanlegt af köfnunarefnissambönduin,
fitu og kolvetnum.
Eins og skýrslan her með sér, þá eru efnasambönd fóður-
tegundanna aðgreind í vatn og næringarefnaflokka. Til nær-
ingarefnaflokksins eru talin köfnunarefnissamböndin, fitan,
kolvetnin, steinefnin og lífefnin eða þeir aðalflokkar, sem
mynda hin föstn efni eða þurrefni fóðurtegundanna. Talið
hefir verið allt frá bernskuskeiði næringarefnafræðinnar, að
næringargildi eða fóðurgildi matar- og fóður-tegunda færi
eftir magni og gæðum köfnunarefnissamhanda, fitu og kol-
vetna. Efnasambönd þau, sem eru í þessum þrem flokkum,
hafa verið talin hin eiginlegu næringarefni matar- og fóður-
tegunda.
Að svo hei'ir verið, og að svo er enn, grundvallast á, að
það eru efnasambönd þeirra, er notast til að viðhalda líkams-
hitanum og sem aflgjafi til allra starfa. Þá greinir skýrslan
frá, hve mörg % af vatni, köfnunarefnissamböndum, fitu og
steinefnum séu í hverri fóðurtegund.
Tekið skal fram, að lífefnamagnið verður ekki gefið upp
10