Búfræðingurinn - 01.01.1941, Blaðsíða 162
156
BÚFRÆRINGURINN
í öðru lagi til að knýja áfram í þágu lífsstarfseminnar,
öndunarfæri, hjarta- og æða-slög, meltingarfæri o. fl. líffæri.
Og í þríðja lagi til að bæta upp slit á vefjum og til endur-
nýjunar á eyddum vökvum líkamans.
Afurðafóðrið. Það þarf alltaf að vera viðbót viðhaldsfóðurs.
Afurðirnar, sem hænsnin skila, eru egg, kjöt og fiður.
Til þess að geta fóðrað hænsnin rétt og fengið þau til að
verpa sem allra hezt, verða menn að þekkja hver fóðurefni
það eru, sem þau þarfnast, og það er því nær gefið, að góður
árangur fæst ekki nema svo sé.
En tekið skal fram, að það eru ekki fóðurefnin eða fóðrun-
in ein, sem hefir áhrif á, hversu gott varp fæst, heldur jafn-
l'ramt arfgengur eiginleiki, er erfist frá foreldruin til af-
kvæma og hægt er að hafa áhrif á með nálcvæmu úrvali. En
þóll menn hafi hænur með ágætis varpeiginMkum, þá
verpa þær ekki mörgum eggjum yfir árið, nema þær hafi
verið vel upp aldar, séu vel hirtar og fái nægilegt fóður af
hentugri efnasamsetningu.
Hvort heldur um varp eða vöxt er að ræða, þarf afurða-
l'óðrið að vera næringargott, en þó einkum sé bæði um varp
og vöxt að ræða. Einkum verður þess að gæta, að hænsnin
fái þá eggjahvítu og þau steinefni, er þau þurfa. Fái þau ekki
fyllstu þörf sína af þeim í fóðrinu, dregur það úr varpinu
og veruleg vöntun, þó ekki væri nema af öðrum þessum efna-
flokki í fóðrið, getur orðið þess valdandi, að hænur verpi ekki.
Enn má geta þess, að eiginleiki hænsnanna er mismunandi
til að umsetja hin meltu og uppsoguðu næringarefni í egg,
svo það eru takmörk íyrir því, hve mikil áhrif er hægt að
hafa á varpið með auknu fóðri. Minna má á, að auk þeirra
afurðafóðurefna, sem þegar hafa verið nefnd, þá hafa hænsn-
in mikla þörl' fyrir lífefni, sökum þess að í eggjarauðunni er
rnikið af þeim.
í heildarfóðri hænsnanna verða næringarefnahlutföllin að
vera „þröng“. Eggin (samanber skýrslu bls. 20) eru mjög
eggjahvítuauðug afurð, þar sem köfnunarefnissamböndin
eru ca. 50% af þurrefni eggsins eða hinum föstu efnum þess.
Því þurfa hænurnar töluverða eggjahvítu í fóðrinu, því eins
og áður er tekið fram, myndast afurðaeggjahvítan aðeins
af eggjahvítuefnum fóðursins, það eru sérstörf hennar að
mynda liana.
i