Búfræðingurinn - 01.01.1941, Page 186
I sumarleyfi.
Eftir Jón G,. Guðnason, Hólmum.
Það var sem óðast verið að undirbúa heyskapartímann viö
skólabúið að Hólum í Hjaltadal. Tvær Herlcúlessláttuvélar
og þrjár rakstrarvélar voru koninar út úr verkfærahúsinu,
og eftir fáa daga skyldu öll þessi verkfæri renna áfram niður
á nýræktinni. Sigurður ráðsmaður leit ei'tir, að allt væri í
lagi með járnin undir hestunum og setti nýhamraðar stál-
skeifur undir suma. Guðbjörg gamla sat enn með band-
prjónana og lykkjaði sokka, það gat komið í góðar þarfir,
þegar færi að halla slætti, ekki var víst, að allir piltarnir væru
vel birgir af fótaplöggum. Sumir nemendur höfðu fengið
undanþágu frá því að þurfa að vinna við skólann um sláttar-
vikurnar og voru nú farnir heim lil sinna skyldmenna. En
þeir, sem eftir voru, fóru að taka til amboðin og gengu
með orfin út á túnið. Þó fá allir nemendur sumarleyfi að
vorinu.
Nokkrir okkar voru enn ekki búnir að taka leyfið, og nú
fannst okkur tími til kominn að fara að litast um, skoða
náttúrufegurðina og umbætur norðlenzku bændanna.
Fórum við því þrír saman til skólastjórans og báðum farar-
leyfis, sögðumst liafa liugsað okkur að fara labbandi austur
í Mývatnssveit og skoða fegurð landsins á þeim slóðum. Við
fengum leyfið og skólastjóri lagði á ráðin, hvernig við skyld-
um haga ferðalaginu.
Laugardaginn 29. júní, kl. 7 að kvöldi, lögðum við af stað
l'rá Hólum, Sigurður ráðsmaður fylgdi okkur fram dalinn
og lánaði hesta. En suður við rætur Hjaltadalsheiðar stigum
við af baki gæðingunum, kvöddum Sigurð með virktum og
þöklcuðum fylgdina. En hann bað okkur vel fara og heila
heim lcoma. Nú skyldi leggja á heiðina, því að norður í
Hörgárdal var ferðinni heitið um kvöldið. Tókum við fim-
lega til fótanna, og eftir svo sem hálfstíma göngu vorum við