Búfræðingurinn - 01.01.1941, Qupperneq 188
BÚ FRÆÐINGURINN
182
siörf, svo hann notaði matartima sinn lil að ganga með olck-
ur um Gróðrarstöðina, sýndi hin fögru, hávöxnu tré og skýrði
fyrir okkur ætterni þeirra og aldur ásamt fleiru, sem fyrir
augun bar. Vorkuldarnir höfðu gert þar vart við sig eins og
víðar, svo matjurtir voru skammt á veg komnar, þrátt fyrir
ágæta umgengni, og ekki sé illgresiskló í görðum. Heyvinnslu-
vélar stóðu á nýræktinni og mátti sjá óljósan árangur
áburðartilraunanna. í sundlaug bæjarins fengum við okkur
morgunbað, og syntum þar í ylvolgu vatninu um stund,
en þar ægði saman ungum og gömlum, íslenzkum borgurum
og brezkum hermönnum. Áður en við fórum úr hænum, skoð-
uðum við ullarverksmiðjuna Gefjun, ungur, fjörlegur maður
fór með okkur um alla bygginguna, lét okkur fylgjast með
ullinni frá því hún kom sem óhreint reifi af sauðkind bónd-
ans og þar lil hún var orðin að fögrum dúkum eða dýrindis-
flík.
Það var orðið áliðið dags, þegar við félagar fórum frá Akur-
eyri. Andrés Pálsson og ég, sem báðir erum Sunnlendingar,
höfðum ekki komið þar áður, þurftum við því viða að koma
og margt að skoða. En sá þriðji, Tryggvi Friðlaugsson, er
Þingeyingur og vel kunnugur þar eystra, enda var hann sjálf-
kjörinn fararstjóri. Um kvöldið héldum við austur yfir fjörð-
inn, yfir Vaðlaheiði um Bíldsárskarð og koiuum að Fjósa-
tungu í Fnjóskadal um kl. 10. Var okkur þar ágætlega tekið
af ungfrú Ingibjörgu og' móður hennar, sem báru fyrir okkur
alls konar góðgerðir, spjölluðu við okkur og spurðu tíðinda að
vestan. Settumst við þar að um nóttina. Enn var upp risið
og áfram haldið næsta dag; við fórum rólega yfir, en gættum
þess að njóta útsýnisins og alls, sem fyrir augun bar, sem
bezt. Þegar liðið var að nóni þennan dag, fór að syrta í lofti
og þoka seltist á fjöll og heiðar, svo við urðum að taka regn-
kápurnar úr bakpokunum og verja okkur vatni. Stóruvellir
í Bárðardal var næsti gististaður, en þar hafði einn oklcar
verið vistráðinn áður en hann fór að Hólum. Páll hreppstjóri,
sem þar býr, er aldraður maður, en ungur í anda og vel fróð-
ur. Var hann mjög skrafhreil'inn og landbúnaðarmálefni voru
lionum efst í huga og áhugamikill fyrir umbótastarfsemi.
Fóru skemmtilegar samræður fram milli hans og okkar. Nú
var leiðin farin að styttast að Mývatnssveit, og miðvikudaginn
3. júlí komuin við að Mývatni. Viðstöðulítið gengum við um