Búfræðingurinn - 01.01.1941, Page 192
18(5
BÚFRÆÐINGURINN
nota tækifærið og þakka Skúla Jóhannssyni vel unnið starf og
ágæta samvinnu. Við starfi Skúla tók Baldur Guðmtmdsson frá
Bóndhól í Mýrasýslu.
1 fyrra vetur voru járnsmíðar kenndar fram að jólum, en kennsla
r trésmíðum hófst um miðjan janúar. Verður smíðakennslu hagað
í vetur með likum hætti.
Fyrirlestrar.
Nokkrir menn komu hér í fyrra vetur og fluttu erindi við skól-
ann. Ragnar Ásgeirsson garðyrkjuráðunautur dvaldi liér i 3 daga
um mánaðamótin október og nóvember. Flutti hann mörg erindi
um garðyrkju, og auk þess nokkur um önnur efni.
Ágúst Jónsson bóndi frá Ilofi i Vatnsdal flutti hér erindi um
búfjársjúkdóma, er hann var hér á ferð 9. janúar.
Ólafur Sigurðsson fiskiræktarráðunautur dvaldi hér dagana frá
19. janúar til 24 s. ml. Fiutti hann þá nokkur erindi um fiskirækt i
ám og vötnum og auk þess 2 erindi um önnur efni.
Árni Sveinsson bóndi á Kálfsstöðum flutti erindi 1. febrúar um
bindindisstarfsemi.
Séra Helgi Konráðsson á Sauðárkróki dvaldi hér sunnudaginn
11. febrúar og hélt þá ræðu um ferð sína suður til Ítalíu, er hann
hafði farið þá sumarið áður.
Þá dvaldi hér tékkneskur stúdent um vikutíma í fyrri hluta
febrúarmánaðar og flutti nokkur erindi um land sitt og þjóð.
Allir þeir, sem hlýddu á ræðumenn þessa, eru þeim þakklátir
fyrir komu þeirra hingað.
Félög og skemmtanir.
Tvö málfundafélög hafa starfað í skólanum þessa vetur eins og
að undanförnu. Annað þeirra, „Málfundafélag IIólaskóla“, sem i eru
allir nemendur og annað heimilisfólk, hefir haldið fundi annað-
hvort laugardagskvöld, og voru haldnir 12 fundir i félaginu i fyrra-
vetur. Á sama hátt starfar félagið i vetur. Allir nemendur, er hér
voru í fyrra vetur, tóku einhvern þátt i umræðum á fundum þess-
um, og sumir tóku þar oft til máls. Eru slik fundahöld nemendum
allmikils virði.
1 hinu félaginu, „Málfundafélagi IIólasveina“, eru aðeins nem-
endur. Það heldur fundi á sunnudögum.
Annaðhvort sunnudagskvöld eru haldnar skemmtanir hér á
Hólum, sein nefnast Kvöldvökur. Nemendur skiptast í nefndir til
þess að undirbúa þær, og sjá alltaf sjálfir um öll skemmliatriði.
Á kvöldvökum eru oft leiknir smá sjónleikir, lesin upp kvæði og
sögur, flutt erindi o. fl. Þá er og lesið blað, er Málfundafélag Hóla-