Viðar - 01.01.1936, Side 189
s
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. 175
barna sinna, ættu að komast langt í uppeldisstarfinu. Hinir, sem
líta svo á, að hið meðfædda beinist í óholla átt, og hafa því það
verk með höndum að rétta við með uppeldismeðölum, þeir fá vanda-
samt hlutverk í lífinu. Verður þessi aðstaða þeim mun alvarlegri,
þegar athuguð er sú kenning, að vafasamt sé, hvort megi sín meira
hið meðfædda eða uppeldið. Það mun sanni næst, að eftir því sem
markmið uppeldisins er mönnum ljósara, þeim mun auðveldara
verður að finna leiðina. Skilningur manna á uppeldis- og menning-
arstarfinu dýpkar og skýrist smátt og smátt í samræmi við þróun
siðgæðisins. Sköpun nýrra uppeldisvísinda og- fullkomin meðferð
hinna þekktu verður ekki framkvæmd af einangruðum né þröngsýn-
um mönnum, hversu lærðið sem þeir kunna. að vera. Vísindaleg rök
og skoðun alþýðu samrýmist oft illa. Svo mun vera meðal annars í
uppeldismálum. Kennari þarf að vera leikinn í þeirri fræðigrein, sem
hann ætlar að kenna öðrum, en honum er ekki ónauðsynlegra að
þekkja fólkið, sem sendir honum nemendur. Kennara ber skylda til,
auk þess sem honum er það hollt, að þekkja hugsunarhátt fólksins,
kröfur þess, þarfir og hagi alla. Æskilegt væri að þeir, sem nú
njóta aðeins tveggja vetra skólavistar í héraðsskóla, fengju þá
reynslu af háttum öllum í skólunum, að í framtíðinni teldu þeir
hverjum unglingi slíka. skóladvöl nokkurs virði. Kennararnir verða
að vaka yfir öllum þeim möguleikum, sem mega verða til þess að
færa nýtt líf og hóflega fjölbreytni í skólastörfin. Fyrsta skilyrðið
fyrir velferð kennslumálanna, sem og annarra vandasamra verk-
efna, er samstarf allra þeirra, sem eiga þau að sameiginlegu á-
hugamáli. Þróun fæst aðeins gegnum fjelagsleg' störf.
Hitt og þetta.
1 bindindissamtökum Laugarvatnsskóla eru nú 152 nemendur og'
kennarar. Tíu hafa látið strika nöfn sín út af skránni.
Mikill meirihluti unga fólksins vill vera bindindissamt. Veltur
því á hvaða áhrifum æskan verður fyrir í uppvextinum.
Félagslíf var með líflegra móti í vetur. Formaður skólafélag'sins
var Þórður Þorsteinsson frá Grund í A.-Hún.
Allir nemendur, ásamt kennurum, fóru til Geysis og' fengu að
sjá fagurt gos.
Á laugardagskvöldum er fimleikasýning annað kvöldið en dans
hitt. — Nanna Þormóðs kenndi dans nokkrar stundir, hjálpaði það
mikið góðum vilja nemenda til þess að gera dansinn snyrtilega
skemmtun. Samhliða laugardags-skemmtununum var oft söngur
stuttar ræður eða. upplestur.
Ljósin eru deyfð kl. 10%. Þá ganga menn til hvílu.
Kennslustofur eru þvegnar á morgnana og' þá strokið af öllu eft-