Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1994, Síða 212

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1994, Síða 212
210 Ritdómur sýna frekar en boða. Frásögnin er „hlutlæg" og höfundamir tiltölulega ijarlægir og láta lítið á sér bera. (Til marks um þetta er það að lesandinn verður ekki var við að tveir menn hafi skrifað bókina og verður að fietta upp í sérstakri greinargerð aftan á titilsíðu ef hann vill komast að því hvor hefur ritað hvað.) Höfundamir taka ekki afgerandi afstöðu, né gera tilraun til að höggva á fræðilega hnúta. Þetta getur þó ekki bara talist jákvætt einkenni á verkinu, einkum þegarlitið er á fyrri hluta bókarinnar. Þar hefði undirritaður vel getað hugsað sér að sjá meiri átök og meiri tilraun til þess að taka efnið fastari tökum. Fyrri hlutinn er að miklu leyti endursögn ýmissa (oft sundurleitra og -lausra) kenninga sem menn hafa sett fram. Þar er að finna kafla sem bera heiti eins og: „Ágrip um mælskufræði" og er þar átt við klassíska mælskufræði, „Stiklur um sögu nútímastílfræði" og „Stílbragðalisti". Einnig em þar kaflar sem fjalla sérstaklega um „Rökræðu- og áróðursstílfræði“ og „Bókmenntalegfaj stflfræði“. Einnig kemur í miðri frásögn kafli sem heitir „Frá höfundi til lesanda". Þótt í fyrri hlutanum sé að finna heilmikinn fróðleik og ljóst sé að höfundamir hafa kynnt sér mikinn fjölda rita sem fjalla um stflfræði, hefði að mínu mati vel mátt kafa dýpra. Aðferð höfundanna, sú að greina ffá hugmyndum annarra, verður til þess að lesanda finnst sem hann hafi hvergi fast land undir fótum, og að höfundamir hefðu getað létt meira undir með honum við að skapa sér þá heildarmynd sem hann óhjákvæmilega sækist eftir. Til að mynda hefði það verið til mikils skýrleiksauka ef höfundamir hefðu gert grein fyrir ýmsum grundvallarforsendum stílfræðilegrar umfjöllunar áður en farið er að segja frá ólíkum kenningum um stflfræði. Það rennur smám saman upp fyrir lesandanum, án afgerandi stuðnings frá höfundunum, að hægt er að nálgast efnið á a.m.k. tvennan hátt. Annars vegar má greina formleg (eða málleg) einkenni stfls. Sem dæmi um slíkt er umfjöllun um setningalengd og ýmis önnur málleg einkenni, einnig notkun stflbragða og orðaval. Hitt sjónarmiðið er hið félagslega, í víðum skilningi. Þar era not fyrir hugtök eins og „stfll embættismanna", „stíll íslendingasagna“, „lærður stfll“ o.s.frv. Þama er stíll greindur eftir umhverfi eða hlutverki. Sem kunnugt er er það ein af grandvallarstaðreyndum um mannlegt mál, að samband merkingar eða hlutverks (m.ö.o. innihalds) og útlits er frjálst (arbítrert), en ekki lögmálsbundið. Ekki er ástæða til að ætla að þessu sé öðravísi varið hvað varðar val á stíl. Það er væntanlega ekki lögmálsbundið í þessum skilningi að íslendingasögur nota stuttar setningar. Það er formlegt einkenni á þeim, en örlögin hefðu e.t.v. getað hagað því öðruvísi, eða hvað? Höfundar hefðu vel mátt gera betri greinarmun formlegra þátta annars vegar og hlutverks og aðstæðna (fúnksjónar) hins vegar. Meðal orða sem oft koma fyrir í umfjöllun höfunda (ekki bara í fyrri hlutanum, heldur vítt og breitt um bókina) eru orðin „talmálsstfll" og „bókmálsstíll“. Orðin tákna samkvæmt eðlilegum skilningi aðgreiningu í hinni „félagslegu" vídd. Talmál er notað við vissar aðstæður, og bókmál við aðrar. Þetta segir ekkert um formlegan mun talmáls og ritmáls. Orð höfunda má þó oft túlka svo sem ljóst sé hver séu einkenni hvors um sig. Um ræðu Bjarts í Sumarhúsum segir á bls. 140 að hún hafi „á sér svolítinn talmálsblæ", án þess að útskýrt sé í hverju sá blær sé fólginn. Að vísu er gefið dæmi, en lesandanum er látið eftir að greina milli talmáls- og bókmálseinkennanna sjálfur. Næst
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212
Síða 213
Síða 214
Síða 215
Síða 216
Síða 217
Síða 218
Síða 219
Síða 220
Síða 221
Síða 222
Síða 223
Síða 224
Síða 225
Síða 226
Síða 227
Síða 228
Síða 229
Síða 230
Síða 231
Síða 232
Síða 233
Síða 234
Síða 235
Síða 236

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.