Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 21

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 21
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 21 elSa S igr ÍÐUr JÓnSdÓtt i r að rík fagmennska sé lögð því til grundvallar. Auk allrar þeirrar kunnáttu sem kenn- ari verður að hafa í farteskinu þarf hann að hafa sterka tilfinningu fyrir því hvert hlutverk hans sé og til hvers menntunin sé. Þetta síðastnefnda er það vandasamasta og kennari þarf stöðugt að ígrunda það svo að hann viti hvað hann er að gera. Faglegur kennari er skapandi og hefur sjálfstraust, hann gerir sér grein fyrir því að hann er að mennta fólk til þess að taka virkan þátt í margbrotnu samfélagi. Forgangsröðun hans er að því marki skýr, en hún nær jafnframt til ótrúlega margra verkefna. Fagmaður gerir sér góða grein fyrir því hve margslungið þetta er og jafnframt hvernig hægt sé að ná mikilvægustu markmiðum menntunar við ólíkar aðstæður og með ólíkum nemendum. Það er vandasamt að skipuleggja skólastarf svo saman fari góður skilningur, sjálf- stæð virkni og öguð vinnubrögð nemandans og þjálfun til verka, en jafnframt að raunverulega sé hvatt til hugmyndaauðgi, frumkvæðis og sköpunar; nám sem gefur nemandanum sjálfstætt vald á þekkingu sinni til þess að nota hana við ófyrirséðar aðstæður. Hvað þarf til? Ég er sannfærður um að þetta verður aðeins framkvæmt í skólastarfi með fagfólki, sem hefur skýra hugmynd um hvað það er að gera, veit hvað þarf til og endurnýjar sig stöðugt í starfi sínu. Það fer auðvitað eftir skólastiginu í hverju kunnátta kennarans á að felast, það er stöðugt viðfangsefni að velta fyrir sér hvað leikskólakennari, grunnskólakennari eða framhaldsskólakennari þurfi að kunna. Oft er talað um að kennarar á efri stigum grunnskólans eða í framhaldsskólanum þurfi að hafa góða kunnáttu í fagi sínu, en það á við um alla kennara. Skapandi kennari hefur djúpstæða þekkingu á hlutverki sínu, faginu, nemandanum, vinnubrögðum og aðstæðum, þetta þarf allt að fara saman. En það er ekki skynsamlegt að gera ráð fyrir að allir kennarar á sama skólastigi hafi nokkurn veginn sömu menntun; ég tel að það sé úrelt sjónarmið. En búi kennarar yfir fjölbreyttri sérhæfingu verður skólinn að vera samstarfsvettvangur ólíkra fagmanna sem bæta hver annan upp og bera virðingu fyrir fagmennsku hvers annars. Þannig birtist fagmennskan hjá skóla sem heildstæðri stofnun. Það er liðin tíð að kennsla sé einyrkjastarf og hver kennari sé látinn einn um sín verkefni. Kennsla, hvort sem er í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla eða háskóla, er samstarfsverkefni þeirra sem í skólanum starfa. Eina leiðin til þessa er að gera kennara að sjálfstæðum fagmönnum í þeirri merk- ingu að þeir hafi góðan skilning á hlutverki sínu og bæði vald á efninu sem þeir kenna og viti hvernig á að kenna það. En verkefnið breytist stöðugt. Og það er nákvæmlega sama glíman hjá kennurum á hvaða skólastigi sem þeir eru, háskólakennarinn og leik- skólakennarinn eru að fást við sama viðfangsefnið að þessu leyti. Fimm ára kennaranám Hvað viltu segja um fimm ára kennaranám? Kennaraháskólinn mælti með því að lengja kennaramenntunina til þess að tryggja fagmennsku í breytilegu samfélagi. Þegar hver einstaklingur er í skóla að lágmarki í tuttugu ár í upphafi lífsferils síns, en iðulega hátt í önnur tíu þegar allt er talið, eru sífellt meiri kröfur gerðar til skóla og kennara sem þurfa því trausta og góða menntun.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.