Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 58

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 58
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 201158 HÖnnUn og SmÍÐi Annar Dani, Søren Meldgaard, hafði heimsótt skóla Salomons í Nääs eins og Mikkel- sen. Hann þróaði annað danskt kennslulíkan í anda Salomons og kenndi uppeldis- miðaða smíði við Askovskólann. Eins og Salomon lagði Meldgaard áherslu á ein- staklingskennslu. Ágreiningur um kennsluaðferðir og óvinátta sem skapaðist á milli Meldgaards og Mikkelsens leiddi hins vegar til baráttu milli dönsku skólanna tveggja. Vegna þessa náði danska skólasmíðin ekki að þróast um árabil (Thane, 1914). Á þessum tíma var Ísland undir dönskum yfirráðum og dönsk áhrif bárust því auð- veldlega til Íslands. Íslendingar sóttu sér einnig framhaldsmenntun til Danmerkur og kynntust þar nýjum menningarstraumum (Mikkelsen, 1891a). Þetta var trúlega ástæða þess að danska skólasmíðin varð fyrirmynd hliðstæðra kennslugreina á Íslandi. Upphaf UppEldismiðaðrar smíðakEnnslU á íslandi og fyrstU lög Um fræðslU barna Tveir íslenskir menntafrömuðir, þeir Jón Þórarinsson og Guðmundur Finnbogason, fengu styrki frá Alþingi á árunum 1890–1908 til að ferðast til Evrópu og kynna sér menntakerfi annarra landa (Guðmundur Finnbogason, 1903/1994). Á þessum tíma var uppeldismiðuð smíði ný kennslugrein í Skandinavíu. Jón og Guðmundur kynnt- ust báðir hugmyndum um uppeldismiðaða smíði á ferðum sínum og urðu fyrir áhrifum frá Aksel Mikkelsen í Danmörku og Otto Salomon í Svíðþjóð. Jón fór síðan á námskeið í handmenntaskóla Mikkelsens í Kaupmannahöfn (Mikkelsen, 1891a) þar sem hann lærði danska skólasmíði. Jón Þórarinsson ferðaðist um Norðurlönd til að kynna sér menntamál sumrin 1890 og 1896 og veturinn 1907–1908. Haustið 1890 hélt Jón fyrirlestur fyrir félaga í Hinu íslenska kennarafélagi þar sem hann kynnti hugmyndafræðilegan bakgrunn upp- eldismiðaðra smíða (Jón Þórarinsson, 1891). Mæltist hann til þess að slík kennslu- stefna, eða skólaiðnaður eins og hann kallaði hana, yrði tekin upp í íslenskum skólum. Uppeldismiðuð smíðakennsla átti þó erfitt uppdráttar á Íslandi og ekki er minnst á hana í fræðslulögum fyrr en 1936. Kennsla hófst þó fljótlega í nokkrum skólum upp úr aldamótunum 1900 (Helgi Elíasson, 1945). Eftir heimkomu Jóns Þórarinssonar frá Danmörku 1890 skrifaði hann ásamt Hinu íslenska kennarafélagi erindisbréf til landshöfðingjans og heimastjórnarinnar. Í bréf- inu er óskað eftir styrk til að hefja kennslu í skólaiðnaði hér á landi og til þess að stofna handmenntaskóla í Reykjavík. Jafnframt vildu þeir mennta kennara í skóla Mikkelsens er gæti veitt hinum íslenska skóla forstöðu og miðlað þekkingu til verðandi kennara (Mikkelsen, 1891a). Yfirvöld sýndu þessu áhuga en erindinu var hafnað. Jón fékk þó styrk til að hefja kennslu í skólaiðnaði í Flensborgarskóla þar sem hann var skólastjóri (Mikkelsen, 1891b). Árið 1903 voru 47 barnaskólar starfræktir hér á landi og í þeim voru 6210 nem- endur á aldrinum 7–14 ára. Handmenntir sem tóku til textílmenntar og smíða voru kenndar í örfáum skólum í Reykjavík um aldamótin 1900 og á Skipaskaga (Guð- mundur Finnbogason, 1905; Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 1984). Jón Þórarinsson var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.