Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Page 29

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Page 29
Þjóðréttarstaða íslands 11 kvæm réttindi í ríkjunum.1) Sem endurgjald fyrir þau réttindi, sem Islendingar fengu í Noregi, skuldbundu þeir sig til að veita Noregskon- nngi stuðning í styrjöldum, þegar þeir væru istaddir í ríki hans, en þó svoaðeins að um vörn væri að ræða fyrir Noreg, en ekki lierferðir utanlands. Þar að auki voru af hverjum þremur vopnfærum Islending- um aðeins tveir herskyldir. Það var alveg eðlilegt að ekkert þvílíkt. ákvæði fyrir Norðmenn á Islandi væri til, þegar atliugað er, hvílíkt öryggi fjarlægðin frá öðrum löndum gaf landinu. Eina hugsanlega stríðshættan stafaði frá Noregi.2) 2. Island 1268—1903. Nokkrum árum eftir að Lslendingar liöfðu gengið' konungi á liönd var þeim fengin ný lögók — Járnsíða—sem m. a. hafði í sér fólgnar mikilvægar stjórnarfarslegar breytingar. Groðorðin og lögsögumanns- embættið voru lögð niðlir. í staðinn fyrir lögsögumanninn kom lögmað- nr, sem skipaður var af konungi og stjórna átti gjörðum Alþingis, og tók þátt í dómsúrskurðum. Lögréttan hélt áfram að vera til en varð nú líka dómstóll. Alþingi tók dræmt við þessum breytingum en samþykti þó lög smám saman á árunum 1271'—(273, er voru í nánu samræmi við norsk lög. Skömmu síðar var gjörð á þeim endurskoðun, og hin nýju, hreyttu lög voru samþykt á Alþingi 1282. Þau gilda í vissum greinum fram á þenna dag. Þau fengu nafnið Jónsbók, eftir Islendingi einum, sem tók þátt í að semja þau. Þessi lög voru einnig í samræmi við norsk lög, en þó var mikið tekið upp í þau úr liinum gömlu íslenzku lögum, G-rágás. Árið 1275 var lögleiddur nýr kristinréttui'. 1 Jónsbók voru tekin upp sömu konungserfðalög og áður voru í gildi gengin í Noregi. Með Gamla Sáttmála varð Island erfðaríki, og þar sem engin sérstök erfðalög voru sett fyrir 1-sland, álít eg, eins og Knud Berlin — án þess þó að fallast á rök hans að öðru leyti — alveg eðlilegt að ákvarðanirnar um konungserfðir í Noregi væri gjörðar g'ildandi fyrir Island.3) Skoðun Einars Arnórssonar, að konungserfðalögin tækju ekki 1) Óbreytt orð P. A. Munchs: Det norske folks historie, Christiania 1852-63, 1: 2, s. 696-97. 2) Árið 1024 krafðist Ólafur Noregskonungur þess, að Island léti af hendi við hann iitla íjallaeyju við norðurströnd landsins,—Grímsey. ísland neitaði þessu, eftir að einn alþingis- manna sýndi fram á hvilík hætta stafaði af því, ef erlent ríki gæti haldið skipaflota við Grímsey. Tveim árum síðar braut konungur upp á deilu við ísland og hélt í gislung hjá sér nokkrum háttstandandi íslendingum, sem voru gestir hans. Krafðist hann þess nú, að ísland skyldi samþykkja norsk lög og gjalda honum bæði skatta og mannbætur. pessum kröfum konungs var vísað burt á Alþingi 1027. — í byrjun 13. aldar reis upp aftur mikil misklíð milli Noregs og íslands. íslenzkir menn höfðu ráðist á nokkra norska kaupmenn, og1 olli það svo mikilli reiði meðal Norðmanna, að verzlunarsamböndum var slitið og árið 1219 ákveðið að gjöra út leiðangur til íslands. Búið var að bjóða út liði og velja skip til ferðarinnar. En fyrir samningalipurð Snorra Sturlusonar varð þessu þó afstýrt. Hann var I miklu áliti hjá Hákoni konungi og hafði tekið virðingarstöðu við hirð hans, eitthvað lika því sem títt er um konungborna menn á vorri tíð, er taka virðingarstöður i her erlendra Þjóðhöfðingja. Z)Knud Berlin, Islands staatsrechtliche Stellung nach Untergang des Freistaats, Berlin 1910 (eftirleiðis auðkent með Knud Beriin), bls. 174. Jón Sigurðsson áleit að konungserfða- lögin hefðu ekki verið samþykt á Islandi heldur sett inn í lögbókina síðar (Jón Sigurðsson, bls. 18). ólafur Halldórsson. sem hefir gefið Jónsbók út, hefir mælt á móti þessari skoðun.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.